Hoppa yfir valmynd

Nr. 6/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 16. janúar 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 6/2020

í stjórnsýslumáli nr. KNU19100044

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 16. október 2019 kærði einstaklingur er kveðst heita, […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari […] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 30. september 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

  Þess er krafist að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að umsókn kæranda verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, í fyrsta lagi á grundvelli 3. mgr. 36. gr., sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, og í öðru lagi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 28. júlí 2019. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi. Þann 7. ágúst 2019 var beiðni um upplýsingar um stöðu kæranda beint til yfirvalda í Grikklandi, sbr. 34. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá grískum yfirvöldum, dags. 17. september 2019, kom fram að honum hefði verið veitt réttarstaða flóttamanns þann 28. febrúar 2018 og að hann væri með gilt dvalarleyfi þar í landi til 27. febrúar 2021. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 19. ágúst 2019, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 30. september 2019 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 1. október 2019 og kærði kærandi ákvörðunina þann 16. október 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd þann 28. október 2019.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Grikklands.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi í viðtölum hjá Útlendingastofnun m.a. greint frá […]. Kærandi hafi greint frá því að hann hafi verið […]. Þá kveði kærandi að í Grikklandi hafi hann þurft að búa við ómannúðlegar og vanvirðandi aðstæður, fyrst á götunni og svo í flóttamannabúðum. Kveðst kærandi ekki hafa séð eiginkonu sína og dóttur í rúm þrjú ár sem hafi reynst honum erfitt, sérstaklega nú þegar dóttir hans sé veik og þurfi að fara í aðgerð. Kærandi kveði að í Grikklandi hafi hann búið við öryggisleysi. Hann hafi ítrekað reynt að verða sér úti um atvinnu en það hafi gengið mjög illa. Hann kveði að einungis hafi verið í boði stopul atvinna á svarta markaðnum þar sem hann hafi verið svikinn um greiðslu launa og verið réttindalaus. Þá greindi hann frá því að mikið hafi verið um fordóma og rasisma í Grikklandi.

Kærandi telji að hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga í ljósi frásagnar hans um þær pyndingar sem hann hafi orðið fyrir í heimaríki, þær ómannúðlegu og vanvirðandi aðstæður sem hann hafi búið við í Grikklandi og þau andlegu veikindi sem hann lýsti og skimunarlisti Útlendingastofnunar staðfestir. Jafnframt gerir kærandi athugasemd við að ekki hafi farið fram lögbundin greining á því hvort hann teljist vera einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sökum andlegra veikinda sinna eins og 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Því liggi engin læknisfræðileg gögn fyrir frá sálfræðingi né geðlækni til að meta andlegt ástand hans. Kærandi vísi til þess að ekki ríki jafnræði meðal umsækjenda um alþjóðlega vernd hér á landi hvað varðar aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu, t.a.m. hafi þeir sem eru í þjónustu hjá tilteknum sveitarfélögum betra aðgengi að góðri geðheilbrigðisþjónustu en þeir sem Útlendingastofnun og einstaka önnur sveitarfélög þjónusta.

Kærandi gerir athugasemd við staðhæfingar Útlendingastofnunar um að honum standi til boða fullnægjandi heilbrigðisþjónusta og aðstoð við framfærslu í Grikklandi. Enn fremur gerir kærandi athugasemd við þá fullyrðingu stofnunarinnar að hann eigi rétt á aðgengi að húsnæði og að opinber framfærsla standi honum til boða í Grikklandi. Þá gerir kærandi athugasemd við þá fullyrðingu að grískum stjórnvöldum skorti hvorki getu né vilja til að vernda flóttafólk og að honum standi til boða fjölskyldusameining í Grikklandi. Vísar kærandi til þess að þegar komi að aðstæðum flóttafólks í Grikklandi hafi Útlendingastofnun tekið lagalegan rétt þess fram yfir raunverulegt aðgengi að lögvörðum réttindum og að þau takmörkuðu úrræði sem hjálparsamtök bjóði upp á standi aðeins litlum hluta þessa hóps til boða. Þá hafi Útlendingastofnun vísað í skráningu hatursglæpa og máttlaus viðbrögð yfirvalda sem svar við þeim fordómum sem flóttafólk upplifi og litið fram hjá þeim veruleika sem flóttafólk búi við í Grikklandi.

Í greinargerð gerir kærandi grein fyrir aðstæðum, aðbúnaði og réttarstöðu þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi og vísar í því sambandi til fjölda skýrslna alþjóðlegra stofnana og frjálsra félagasamtaka máli sínu til stuðnings. Vísar kærandi m.a. til þess að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafi lögum samkvæmt rétt á heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu, atvinnu og húsnæði en það skorti á að lögunum sé framfylgt og fólk fái raunverulega ekki notið þeirra réttinda.

Krafa kæranda er í fyrsta lagi byggð á því að ótækt sé að beita heimild a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem hann njóti verndar 1. mgr. 42. gr. laganna og því sé íslenskum stjórnvöldum skylt að taka mál hans til efnislegrar meðferðar skv. 3. mgr. 36. gr. laganna. Kærandi vísar til þess að íslenska ríkið sé bundið af grundvallarreglunni um non-refoulement sem kveði á um bann við því að senda einstakling þangað sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu. Með 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga hafi verið áréttaður sá vilji löggjafans að við möguleg brot gegn grundvallarreglunni um non-refoulement með endursendingu til annars Evrópuríkis skuli taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar. Kærandi telji að túlkun íslenskra stjórnvalda á fordæmum Mannréttindadómstóls Evrópu sé röng og að með núverandi framkvæmd firri þau sig ábyrgð skv. ofangreindri grundvallarreglu langt umfram efni. Kærandi vísar til tiltekinna dóma Mannréttindadómstólsins, máli sínu til stuðnings, og telur að við endursendingu hans til Grikklands muni íslensk stjórnvöld gerast brotleg við fyrrgreinda grundvallarreglu. Kærandi telur að við endursendingu til Grikklands muni lífsgæði hans ekki aðeins versna verulega heldur muni lífskjör hans ekki ná því lágmarki sem 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu kveði á um. Í Grikklandi hafi kærandi hvorki haft aðgang að húsnæði né fengið framfærslu og hafi honum ekki verið kleift að vinna fyrir sér. Þá muni hann standa frammi fyrir ómannúðlegum og vanvirðandi aðstæðum þar í landi. Þörf hans fyrir mannúðarvernd hér á landi sé sérstaklega brýn og fyrir hendi séu sannfærandi mannúðarástæður. Kærandi telji að íslenskum stjórnvöldum sé því skylt að taka mál hans til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá byggir kærandi kröfu um efnismeðferð í öðru lagi á því að uppi séu sérstakar ástæður í máli sínu í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til lagaáskilnaðarreglu 2. málsl. 2. mgr. 66. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 sem setji stjórnvöldum afar þröngar skorður við setningu stjórnvaldsfyrirmæla vegna meðferðar umsókna um alþjóðlega vernd. Kærandi telji að reglugerð nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, brjóti gegn lögmætisreglunni. Þar sé að finna skilyrði vegna sérstakra ástæðna sem hafi ekki stoð í settum lögum og önnur sem gangi beinlínis gegn ákvæðum laga um útlendinga. Í ljósi markmiðs laga um útlendinga hafni kærandi því að við mat á sérstökum ástæðum hafi sjónarmið um skilvirkni umsóknarferilsins og mikilvægi samvinnu aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins nokkurt vægi. Þá vísar kærandi til þess að hvergi í lögskýringargögnum sé að finna kröfu um hátt alvarleikastig erfiðleika, alvarlega mismunun, verulegar og óafturkræfar neikvæðar afleiðingar á andlega og líkamlega heilsu eða að meðferð sjúkdóms sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Þessar kröfur hafi enga stoð í lögum og gangi gegn lögmætisreglunni.

Kærandi áréttar að hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísi til þess að hann hafi átt erfitt uppdráttar í Grikklandi m.a. vegna þeirrar kerfislægu og alvarlegu mismununar sem þar þrífst gagnvart flóttafólki. Mismununin birtist í fordómum grísks samfélags, reglna sem geri flóttafólki erfitt með að nálgast þjónustu í Grikklandi, skorti á aðstoð og fræðslu grískra stjórnvalda, sem og aðgengi að menntun og atvinnu. Með vísan til þessa muni staða kæranda verða verulega síðri en staða almennings í Grikklandi. Kærandi hafi lýst því hve mikilvægt það sé að hann fái að sameinast fjölskyldu sinni á ný, m.a. í ljósi veikinda dóttur hans. Hann telji að það sé honum ómögulegt í Grikklandi og vísar til tiltekinnar heimildar þar sem fram kemur að flóttafólk standi frammi fyrir hindrunum þegar kemur að fjölskyldusameiningu í Grikklandi. Þá vísar kærandi til 32. gr. a reglugerðar nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga, nr. 540/2017 þar sem ítrekuð er grundvallarreglan um einingu fjölskyldunnar og segir að við mat á sérstökum ástæðum beri m.a. að líta til þess hvort flutningur úr landi til viðtökuríkis hafi í för með sér hættu á að fjölskylda aðskiljist eða muni aðskiljast. Með vísan til viðkvæmrar stöðu kæranda, að hann muni eiga erfitt uppdráttar í Grikklandi og möguleika hans til fjölskyldusameiningar sé íslenskum stjórnvöldum skylt að taka umsókn hans til efnismeðferðar á grundvelli sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi þann 28. febrúar 2018 og hefur gilt dvalarleyfi þar í landi til 27. febrúar 2021. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2018 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 13. mars 2019);
  • Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Asylum Information Database, National Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, 29. mars 2019);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • ECRI Report on Greece (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 24. febrúar 2015);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
  • Freedom in the World 2019 – Greece (Freedom House, 2019);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);
  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu, og
  • World Report 2019 – European Union (Human Rights Watch, 17. janúar 2019).

Af ofangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafa vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt sjálfkrafa aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi eiga rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig getur verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta á jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í ríkinu. Sem fyrr segir eiga einstaklingar með alþjóðlega vernd sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar en aðgengi þeirra að húsnæði er háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með löglega dvöl í Grikklandi. Fá gistiskýli eru í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt getur reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin er mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem hafa verið sendir til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum.

Í framangreindum gögnum kemur fram að grísk yfirvöld veita einstaklingum með alþjóðlega vernd sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna. Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði og má sem dæmi nefna að þeir þurfa að hafa kennitölu, skattnúmer, gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Þá kemur fram í fyrrnefndum gögnum að engin sérúrræði eru til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga.

Í fyrrnefndri ársskýrslu Asylum Information Database kemur fram að einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi geta sótt um fjölskyldusameiningu. Þá kemur fram að einstaklingur sem ekki er í hjúskap en sannanlega er í sambandi með einstaklingi sem hlotið hefur alþjóðlega vernd á rétt á fjölskyldusameiningu en færa þarf sönnur fyrir sambandinu. Þá má einnig ráða af framangreindum skýrslum að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd fyrir skorður á möguleikum einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd til fjölskyldusameiningar í Grikklandi. Kemur þar m.a. fram að samkvæmt grískum lögum eiga einstaklingar sem hlotið hafa viðbótarvernd í Grikklandi ekki rétt á fjölskyldusameiningu og þá eru ýmsar hömlur fyrir þá sem eru með réttarstöðu flóttamanns, m.a. vegna langs afgreiðslutíma umsókna, kröfu stjórnvalda til framlagningar gagna og erfiðleika við útgáfu vegabréfsáritana fyrir fjölskyldumeðlimi þegar umsókn hefur verið samþykkt.

Í framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggja bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur eru ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsakar meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar eru á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla er tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem eru þolendur glæpa og tala hvorki né skilja grísku eiga rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilja.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi […] ára karlmaður. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun hefur kærandi m.a. greint frá því að hann hafi […]. Þá hafi kærandi lýst því að hann sé almennt heilsuhraustur en að andleg líðan hans sé slæm og hann hafi glímt við […]. Þá greindi hann frá því að hann hafi sótt tíma hjá sálfræðingi í Grikklandi. Í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 19. ágúst 2019 var kæranda leiðbeint um að leggja fram læknisfræðileg gögn frá Göngudeild sóttvarna og leiti hann til læknis, leggja fram læknisfræðileg gögn sem hann telji hafa þýðingu fyrir málið. Með tölvupósti kærunefndar, dags. 3. desember 2019, var kæranda á ný leiðbeint um að leggja fram frekari gögn, þ.m.t. læknisfræðileg gögn, en engin frekari gögn bárust kærunefnd.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstóllinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016.

Í ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki nái ekki því alvarleikastigi að teljast brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóti alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem standi til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæltu gegn endursendingu.

Að mati kærunefndar eru einstaklingsbundnar aðstæður kæranda ekki slíkar að endursending hans til Grikklands verði talin ómannúðleg og vanvirðandi meðferð. Þá er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður sem mæli gegn endursendingu kæranda til Grikklands. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í Grikklandi telur kærunefnd að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi verður ráðið að kærandi eigi rétt á grunnheilbrigðisþjónustu. Í ljósi fyrirliggjandi gagna telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti fengið viðhlítandi aðstoð í Grikklandi vegna heilsufarsvandamála sinna, þ.m.t. geðheilbrigðisaðstoð. Aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst og telur kærunefnd að þær séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Í því sambandi hefur nefndin m.a. litið til þess að heilsufar kæranda sé ekki með þeim hætti að hann teljist glíma við „mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki“ eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður hans geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, líkt og segir í 3. mgr. sömu greinar.

Þá hefur kærandi greint frá því að aðstæður hans í Grikklandi hafi verið erfiðar, m.a. í ljósi skorts á félagslegri framfærslu, erfiðleika við að finna atvinnu og fordóma. Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður í Grikklandi kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd þar hafi heimild til að stunda atvinnu og eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að sækja þá þjónustu. Þótt skýrslur um aðstæður í Grikklandi bendi til þess að aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar þar séu um margt lakari en aðstæður þeirra hér á landi, m.a. m.t.t. inntaks félagslegrar aðstoðar og aðgangs að félagslegum húsnæðisúrræðum, er það mat nefndarinnar að almennar aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi séu ekki þess eðlis að þær, einar og sér, teljist til sérstakra ástæðna. Þá er það mat kærunefndar að aðstæður kæranda séu ekki slíkar að hann geti ekki borið sig eftir þjónustu og aðstoð í Grikklandi.

Jafnframt getur kærandi leitað til grískra yfirvalda verði hann fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Þar að auki getur hann leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda óttist hann um öryggi sitt. Vegna athugasemdar kæranda varðandi möguleika hans til fjölskyldusameiningar tekur kærunefnd fram að samkvæmt gögnum málsins hafa einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns möguleika á fjölskyldusameiningu í Grikklandi. Af framangreindum gögnum verður ráðið að kærandi geti sótt um fjölskyldusameiningu á grundvelli alþjóðlegrar verndar sinnar í Grikklandi, þó svo að kærandi þurfi að yfirstíga ákveðnar hindranir til þess. Að mati kærunefndar verður ekki litið svo á að reglur um fjölskyldusameiningu í Grikklandi séu þess eðlis að litið verði svo á að kærandi eigi erfitt uppdráttar af þeim sökum. Telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Í því sambandi hefur nefndin jafnframt litið til þess sem fram kemur í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga að efnahagslegar ástæður geti ekki talist til sérstakra ástæðna.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 19. ágúst 2019 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 28. júlí 2019.

Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar

Svo sem áður hefur komið fram gerir kærandi í greinargerð sinni ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, m.a. við trúverðugleikamat stofnunarinnar. Þá gerir kærandi athugasemd við rannsókn Útlendingastofnunar með vísan til 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga og byggir á því að ekki hafi farið fram lögbundin greining á því hvort kærandi teljist vera í viðkvæmri stöðu. Þá gerir kærandi einnig athugasemd við lagastoð og beitingu reglugerðar nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga.

Í 2. málsl. 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd skal Útlendingastofnun tryggja, eins fljótt og kostur er, að fram fari, með aðstoð viðeigandi sérfræðinga, einstaklingsbundin greining á því hvort umsækjandi teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda byggði stofnunin mat sitt á einstaklingsbundnum aðstæðum hans á viðtali hans hjá stofnuninni. Af gögnum málsins má sjá að kæranda var leiðbeint um möguleika á að ræða við sérfræðinga og leggja fram heilsufarsgögn til stuðnings máli sínu. Í því sambandi bendir kærunefnd á að kærandi hafi hitt sérfræðinga Göngudeildar sóttvarna auk þess sem hann hafi lýst andlegri líðan sinni í viðtölum hjá Útlendingastofnun. Kærunefnd áréttar að það er fyrst og fremst á ábyrgð kæranda og talsmanns að leggja fram þau gögn sem teljast nauðsynleg við meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd. Kærunefnd gerir því ekki athugasemd við framangreinda málsmeðferð Útlendingastofnunar. Þá er það mat kærunefndar að viðtal kæranda hjá Útlendingastofnun hafi ekki gefið sérstakt tilefni til þess að stofnunin þyrfti að aðhafast frekar í gagnaöflun varðandi heilsufar til þess að unnt væri að meta hvort hann hefði sérþarfir í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærunefnd gerir því ekki athugasemd við málsmeðferð Útlendingastofnunar að þessu leyti.

Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg en áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar að reglugerðina skortir ekki lagastoð. Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemd við hana. Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Frávísun

Kærandi kveðst hafa komið hingað til lands þann 26. júlí 2019. Hann sótti um alþjóðlega vernd þann 28. júlí 2019. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin. 

 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

 

Þorbjörg Inga Jónsdóttir                                                                                              Árni Helgason


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta