Mál nr. 2/2016 Úrskurður 8. janúar 2016
Mál nr. 2/2016 Aðlögun kenninafns: Daníelsson
Hinn 8. janúar 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 2/2016 en erindið barst nefndinni 4. janúar:
Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 29. desember 2015, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni XXX um að sonur hennar taki upp kenningu til föður síns, Daniele YYY. Óskar hún að rita eiginnafn föðurins verði lagað að íslensku máli, Daníelsson.
Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.
Úrskurðarorð:
Fallist er á föðurkenninguna Daníelsson.