Mál nr. 5/2016 Úrskurður 8. janúar 2016
Mál nr. 5/2016 Aðlögun kenninafns: Kristofersdóttir
Hinn 8. janúar 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 5/2016 en erindið barst nefndinni 7. janúar:
Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 6. janúar 2016, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni XXX um að taka upp kenningu til föður síns, Krysztof. Óskar hún að kenninafnið verði lagað að íslensku máli og ritað Kristofersdóttir.
Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.
Úrskurðarorð:
Fallist er á föðurkenninguna Kristofersdóttir.