Mál nr. 68/2014 úrskurður 3. október 2014
Mannanafnanefnd-úrskurðir
Mál nr. 68/2014
Eiginnafn: Þóri
Hinn 3. október 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 68/2014 en erindið barst nefndinni 11. september:
Eiginnafnið Þóri (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Þóra, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Þóri (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.