Mál nr. 71/2014 úrskurður 3. október 2014
Mannanafnanefnd-úrskurðir
Mál nr. 71/2014
Millinafn: Fletcher
Hinn 3. október 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 71/2014 en erindið barst nefndinni 8. september:
Samkvæmt 2. mgr. 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn nr. 45/1996 skal millinafn dregið af íslenskum orðstofnum en má þó ekki hafa nefnifallsendingu. Millinafnið Fletcher er ekki dregið af íslenskum orðstofnum og með vísan til framanrakins lagaákvæðis ber að hafna beiðni um að það verði skráð í mannanafnaskrá.
Úrskurðarorð:
Beiðni um millinafnið Fletcher er hafnað.