Mál nr. 72/2014 úrskurður 3. október 2014
Mannanafnanefnd-úrskurðir
Mál nr. 72/2014
Eiginnafn: Hróbjartur
Hinn 3. október 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 72/2014.
Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 24. september 2014, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni a og b um að heimilað verði að breyta rithætti nafns sonar þeirra úr Robert í Hróbjartur þannig að nafnið verði aðlagað íslensku máli.
Ekkert í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.
Úrskurðarorð:
Fallist er á ritháttinn Hróbjartur.