Hoppa yfir valmynd

Nr. 377/2017 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 29. júní 2017 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 377/2017

í stjórnsýslumáli nr. KNU17030051

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 28. mars 2017 kærði […], ríkisborgari […] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 17. mars 2017, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga. Jafnframt var honum synjað um dvalarleyfi vegna sérstakra tengsla við landið skv. 78. gr. sömu laga. Kærandi sótti um vernd ásamt eiginkonu sinni og tveimur börnum.Kærandi krefst þess aðallega að honum og börnum hans verði veitt staða flóttamanna með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara krefst kærandi þess að þeim verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. sömu laga. Til þrautavara krefst kærandi þess að þeim verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsatvik og málsmeðferð Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi þann 9. september 2016. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun m.a. þann 21. og 22. nóvember 2016 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 17. mars 2017, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Þá var honum synjað um dvalarleyfi vegna sérstakra tengsla við landið. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála þann 28. mars 2017. Kærunefnd barst greinargerð kæranda þann 12. apríl 2017, ásamt fylgigögnum. Kærandi kom til viðtals hjá kærunefnd útlendingamála þann 8. júní 2017 ásamt talsmanni sínum og túlki. Kærandi skilaði inn viðbótargögnum þann sama dag.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Við meðferð máls kæranda hjá Útlendingastofnun bar kærandi því við að hann og fjölskylda hans séu í hættu vegna deilna fjölskyldu kæranda við aðra fjölskyldu í heimaþorpi kæranda í […]. Hann bar því einnig við að hann verði fyrir mismunun í heimaríki vegna uppruna síns. Þá kvaðst kærandi einnig óttast ofsóknir vegna […] sinnar.Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi sé ekki flóttamaður og honum skuli synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi skv. ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða og vegna sérstakra tengsla við landið skv. 74. gr. og 78. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi. Kæranda var vísað frá landinu á grundvelli d-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að í viðtölum hjá Útlendingastofnun hafi kærandi greint frá því af hverju hann hafi flúið heimaríki sitt. Í fyrsta lagi sé staða […] ríkisborgara af […] uppruna mjög slæm í […], þeir verði fyrir mikilli mismunun, fordómum og áreiti. Hann og fjölskylda hans hafi búið á svæði sem sé að hluta til afgirt, í þorpi sem nefnist […], og ekki sé fullt ferðafrelsi út af svæðinu. Kærandi þurfi að fara í gegnum fjölmargar skoðunarstöðvar [...] til að geta sinnt vinnu eða nauðsynlegum erindum. Kærandi hafi sótt vinnu í […] en þar hafi honum verið meinað að tala […]. Þá hafi hann neyðst til þess að breyta nafni sínu og fela […] auðkenni sín til þess að verða síður fyrir fordómum og áreiti. Erfitt sé fyrir […] að fá vinnu og þeir fái hálf laun á við […]. Þá eigi kærandi land, en hann [...] á því. Öryggisástand á heimasvæði hans sé mjög slæmt og lögreglan sé ekki fús að koma þangað til að halda uppi lögum og reglu. Í öðru lagi sé hann og fjölskylda hans í hættu vegna deilna á milli fjölskyldu kæranda og annarrar fjölskyldu sem búi í sama þorpi. Kveikjan að deilunni hafi byrjað fyrir um 15-20 árum og á nokkurra ára fresti komi upp vandamál í tengslum við deiluna. Nú hafi frændi kæranda verið sakaður um að myrða dreng úr hinni fjölskyldunni. Kærandi hafi búið mitt á milli deiluaðila en sé sjálfur hlutlaus í málinu. Eitt sinn hafi verið skotið á hús hans vegna deilunnar. Lögreglan vilji ekki veita aðstoð í málinu. Í þriðja lagi sé kærandi […]. Hann hafi áttað sig á því þegar hann var 19 ára gamall […]. Hann hafi gengið í hjónaband [...] frá fjölskyldu sinni. Hann þurfi að halda […] leyndri því annars myndi hann verða fyrir fordómum frá bæði […]. Þá liggi […] í því samfélagi sem hann komi frá.

Kærandi byggir á því að hann sé fórnarlamb ofsókna á grundvelli þjóðernis, trúarbragða og vegna aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi, en hann hafi ítrekað orðið fyrir kerfisbundinni og ólögmætri mismunun í […], sbr. 1. mgr. 37. gr. og 1. mgr. og b-lið 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Hann eigi á hættu ómannúðlega og vanvirðandi meðferð og að lífi hans og fjölskyldu hans yrði stofnað í hættu yrði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Yfirvöld hafi ekki getu og/eða vilja til að veita honum og fjölskyldu hans fullnægjandi vernd.

Í greinargerð kæranda er ítarlega farið yfir ástand mannréttindamála í […], þá sérstaklega varðandi stöðu […] ríkisborgara. Vísar kærandi í alþjóðlegar skýrslur máli sínu til stuðnings og bendir m.a. á að alvarlegustu mannréttindabrotin í […] séu mismunun samfélagsins og stofnana gagnvart […] ríkisborgurum af […] uppruna, sérstaklega hvað varðar aðgang að menntun á jafnræðisgrundvelli, aðgang að húsnæði sem og varðandi atvinnumöguleika. Alþjóðlegir aðilar hafi lýst yfir áhyggjum af því að meginreglur um jafnræði og bann gegn mismunun séu ekki lögfestar í grunnlögum […]. Börn sem séu […] ríkisborgarar af […] uppruna sæti einnig mismunun en yfirvöld í […] haldi úti aðskildum almenningsskólum, annars vegar fyrir […] börn og hins vegar fyrir börn sem tali […] að móðurmáli. Þá sé staða […] ríkisborgara af […] uppruna slæm, bæði gagnvart […], sem líti á [...]sem dauðasynd, og gagnvart […].

Kærandi fer í greinargerð sinni yfir hvað flokkist undir það að vera ástæðuríkur ótti og ofsóknir samkvæmt handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna. Þá bendir kærandi á að samkvæmt handbókinni jafngildi mismunun aðeins ofsóknum við tilteknar aðstæður, þ.e. ef meðferð, sem í felist mismunun, hafi verulega skaðlegar afleiðingar í för með sér fyrir viðkomandi, t.d. alvarlegar takmarkanir á rétti hans til að framfleyta sér, rétti hans til að iðka trú sína, eða aðgangi að menntastofnunum sem að öllu jöfnu standi til boða. Þó að ráðstafanir, sem feli í sér mismunun, séu í sjálfu sér ekki af alvarlegum toga, þá geti þær engu að síður getið af sér það sem kærandi kallar hæfilegan ótta við ofsóknir. Kærandi áréttar að hann hafi orðið fyrir langvarandi ofsóknum, mismunun, fordómum og áreiti í heimaríki sínu.

Kærandi gerir athugasemd við það mat Útlendingastofnunar að honum standi til boða aðstoð og vernd […] lögreglunnar, burtséð frá uppruna hans, leiti hann eftir henni. Þetta mat sé engan veginn í samræmi við þann raunveruleika sem […] ríkisborgarar af […] uppruna þurfi að þola í samskiptum sínum við lögregluna. Vísar kærandi m.a. í skýrslu […], sem […] […] uppruna hafi látið útbúa, þar sem finna megi upplýsingar um fjölþætt aðgerðarleysi […] lögreglunnar þegar komi að því að takast á við aukna glæpatíðni á meðal […] minnihlutans í […]. Kærandi gerir jafnframt athugasemd við það mat Útlendingastofnunar að sú mismunun sem hann hafi lýst verði ekki talin ná þeim þröskuldi hvað alvarleika varðar að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Telur kærandi að furðu sæti að Útlendingastofnun komist að þessari niðurstöðu þegar heimildir staðfesti með óyggjandi hætti að […] borgarar […] hafi um áratuga skeið orðið fyrir og verði ennþá fyrir grófri og fjölþættri mismunun vegna uppruna síns og trúarbragða. Þá verði þeir ítrekað fyrir aðkasti […] fyrir það eitt að tala […] á götum úti. Jafnframt sé heilbrigðisþjónusta þeirra verri en […] og aðgangur og notkun þeirra á landi sé oft skertur í miklum mæli. Auk þess veiti lögreglan […] ríkisborgurum lakari vernd en […].

Í þessu samhengi áréttar kærandi að ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga geti einnig falist í samsafni athafna, t.d. ólögmætri mismunun, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Þá geti ofsóknir falist í löggjöf og aðgerðum stjórnvalda, lögreglu og dómstóla sem feli í sér mismunun að efni til eða vegna þess hvernig þær séu framkvæmdar, sbr. b-lið 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærandi vekur athygli á því að Útlendingastofnun hafi ekki fjallað sérstaklega um þennan lagagrundvöll, þrátt fyrir að byggt hafi verið á þessu í greinargerð hans til stofnunarinnar.

Kærandi telur að endursending hans myndi brjóta í bága við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrárinnar, 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, 3. gr. samnings gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu og 33. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna. Kærandi bendir m.a. á að stjórnvöld séu bundin af rannsóknarreglu stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og leiki vafi á því að kærandi muni njóta þeirrar verndar sem hann þarfnist vegna stöðu sinnar í heimaríki beri íslenskum stjórnvöldum að túlka þann vafa kæranda í vil. Á grundvelli heildstæðs mats á aðstæðum í málinu beri að veita kæranda og sonum hans alþjóðlega vernd á Íslandi skv. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.Hvað varðar varakröfu kæranda um viðbótarvernd bendir kærandi á að hann óttist að hann og fjölskylda hans verði fórnarlömb árásar af hendi fjölskyldunnar sem fjölskylda hans deili við. Lögreglan hafi ekki viljað blanda sér í átökin og muni því ekki veita fjölskyldunni þá vernd sem sé nauðsynleg. Kærandi eigi því á hættu ómannúðlega og vanvirðandi meðferð og að lífi hans yrði stofnað í hættu yrði honum gert að snúa aftur til […].

Varðandi þrautavarakröfu kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga bendir kærandi á að ákvæðið heimili að veita dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða ef útlendingur geti sýnt fram á ríka þörf á vernd. Í greinargerð með frumvarpi til laganna komi m.a. fram að taka verði mið af svipuðum sjónarmiðum og gert sé við mat á öðrum ákvæðum kaflans, s.s. almennra aðstæðna í heimalandi, þ. á m. hvort grundvallarmannréttindi séu nægilega tryggð.

Kærandi bendir þá á að börn teljist til sérstaklega viðkvæms hóps hælisleitenda, hvort sem þau séu í fylgd umönnunaraðila eða ekki. Þess sé óskað fyrir hönd barnanna að tekið verði tillit til þeirrar verndar sem þau eigi rétt á samkvæmt barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, íslenskum lögum og öðrum reglum sem íslensk stjórnvöld séu bundin af þjóðarétti að virða. Vísar kærandi m.a. í barnalög nr. 76/2003 og lög um útlendinga og bendir á að enginn vafi sé um það að það sé börnunum ekki fyrir bestu að verða send ásamt foreldrum sínum til […] þar sem þeirra bíði ótryggt öryggisástand, kerfisbundin mismunun, fordómar, áreiti og önnur mannréttindabrot.

Hvað varðar mögulegan flutning kæranda innanlands bendir kærandi á að þær ofsóknir sem hann óttist séu annars vegar af hendi yfirvalda og almennings í […] og hins vegar af hendi […] á heimasvæði kæranda. Ekki verði séð að staða kæranda batni við flutning innanlands en ferðafrelsi hans sé þegar miklum takmörkunum háð. Í viðtali eiginkonu kæranda hjá Útlendingastofnun hafi komið fram að hún teldi að staða þeirra yrði miklu verri ef þau myndu flytja innanlands en alls staðar væru […] sem hefðu mikla fordóma í garð […]. Í raun væri fjölskyldan því í meiri hættu ef hún myndi flytja sig um set.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, sbr. 121. gr. laganna, reglugerð nr. 53/2003 um útlendinga með áorðnum breytingum að því leyti sem hún hefur enn lagastoð, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað […] vegabréfi og […] kennivottorði. Telur kærunefnd því ljóst að kærandi sé […] ríkisborgari.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í […]m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum: […]. […] Helstu vandkvæðin tengd mannréttindum sem eigi sér stað í […] séu m.a. hryðjuverkaárásir sem beinist að almennum borgurum og mismunun gagnvart […] ríkisborgurum af […] uppruna. Sú mismunun varði sérstaklega aðgang að jafnri menntun, húsnæði og atvinnumöguleikum. Stjórnvöld virðist þó vera meðvituð um vandann að einhverju leyti. Í […] hafi þau til að mynda samþykkt áætlun til nokkurra ára sem snúi að uppbyggingu í samfélagi […] í landinu á ákveðnum sviðum, m.a. á sviði menntamála og samgangna. Lögreglan í […] sé undir yfirstjórn innanríkisráðuneytisins […] og úrræði séu til staðar fyrir stjórnvöld til að rannsaka og refsa fyrir brot og spillingu innan lögreglunnar. Meðal annars sé til staðar sérstök deild innan dómsmálaráðuneytisins sem rannsaki ákveðnar kvartanir undan lögreglunni. Þá sé jafnframt hægt að beina kvörtunum til embættis umboðsmanns í landinu. Borgaraleg samtök séu til staðar til að aðstoða einstaklinga við að kvarta undan framferði lögreglu.

Gögnum beri saman um það að alla jafna sé frelsi borgara og fjölmiðla almennt mikið og einstaklingar og fjölmiðlar geti að mestu gagnrýnt stefnu stjórnvalda óáreittir. Lög kveði á um bann við mismunun á grundvelli [...] og stjórnvöld hafi almennt framfylgt því banni. Mismunun byggð á [...] finnist þó í sumum hlutum samfélagsins og til að mynda sé [...] ekki almennt viðurkennd hjá ákveðnum hópum sem séu mjög trúaðir. Viðmót sé almennt gott í stærri borgum eins og til dæmis […]. Í landinu séu starfandi frjáls félagasamtök sem vinni að réttindum [...]. Skólaskylda sé til staðar í […] og grunnskólamenntun til 17 ára aldurs (e. primary and secondary education) sé gjaldfrjáls. Skólar séu aðgreindir, annars vegar fyrir börn sem tali […] og hins vegar fyrir börn sem tali […].

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Til að teljast flóttamaður hér á landi þarf kærandi að sýna fram á að aðstæður hans séu slíkar að þær falli undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna, eða 2. mgr. 37. gr. sömu laga. Kærandi ber fyrir sig að hann verði fyrir ofsóknum í heimalandi vegna stöðu sinnar sem […] ríkisborgari af […] uppruna. Kærandi og fjölskylda hans séu jafnframt í hættu vegna deilna á milli fjölskyldu kæranda og annarrar fjölskyldu. Þá sé kærandi […] en hann þurfi að halda því leyndu.

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Almennt ber að telja ótta umsækjanda um alþjóðlega vernd ástæðuríkan ef hann getur á nægilega skýran hátt sýnt fram á að áframhaldandi dvöl í heimaríki sé honum óbærileg af ástæðum sem tilgreindar eru í 1. mgr. 37. gr. eða yrði óbærileg af sömu ástæðum ef hann sneri aftur. Hugtakið „ástæðuríkur ótti við ofsóknir“ inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn a.m.k. að sýna fram á að ákveðnar líkur séu á að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2011). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærandi er […] ríkisborgari af […] uppruna og ber fyrir sig að staða slíkra einstaklinga sé mjög slæm í […], þeir verði fyrir mismunun, fordómum og áreiti af hálfu stjórnvalda. Þá verði kærandi fyrir áreiti og mismunun af hálfu samborgara sinna vegna uppruna. Kærandi ber jafnframt fyrir sig að hann og fjölskylda hans séu í hættu vegna deilna á milli fjölskyldu kæranda og annarrar fjölskyldu sem búi í sama þorpi. Enga aðstoð sé að fá frá lögreglu vegna þessa. Þá sé kærandi […] en hann þurfi að halda […] leyndri því annars eigi hann á hættu að verða fyrir fordómum frá bæði […] og […].

Kærandi hefur, bæði í viðtölum hjá Útlendingastofnun og hjá kærunefnd, lýst þeirri mismunun sem hann kveðst hafa orðið fyrir í heimaríki. Þá kveðst kærandi hafa sótt um alþjóðlega vernd í Kanada árið […] ásamt fjölskyldu sinni. Þau hafi þó farið til baka til […] árið […], áður en umsókn þeirra hafi verið afgreidd í Kanada. Hafi þau þá snúið aftur til þess svæðis þar sem þau hafi áður búið. Kærunefnd telur ljóst af þeim gögnum sem nefndin hefur skoðað að […] ríkisborgarar af […] uppruna kunni að verða fyrir ákveðinni mismunun í […], þá sérstaklega hvað varði aðgang að jafnri menntun, húsnæði og atvinnu. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum og öðrum heimildum hafi stjórnvöld í […] þó viðurkennt vandann að einhverju leyti og í […] hafi þau samþykkt áætlun til nokkurra ára sem snúi að uppbyggingu í samfélagi […] í landinu á ákveðnum sviðum. Kærunefnd telur, með tilliti til gagna málsins og framburðar kæranda, að aðstæður í landinu og þau atvik sem kærandi hafi lýst er varða mismunun og aðgerðir stjórnvalda gagnvart honum nái ekki því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá telur kærunefnd að kærandi hafi ekki sýnt fram á að yfirvöld í heimaríki hans geti ekki eða vilji ekki veita honum og fjölskyldu hans vernd gegn deilum, öðru áreiti og ofsóknum, þrátt fyrir aðgerðarleysi lögreglu í einstaka tilvikum.

Líkt og vísað var til hér að framan kemur fram í þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér að lög í heimaríki kæranda kveði á um bann við mismunun á grundvelli [...] og stjórnvöld hafi almennt framfylgt þeim lögum. Þá séu jafnframt til staðar frjáls félagasamtök sem vinni að réttindum [...] í landinu. Kærunefnd telur því að kærandi eigi ekki á hættu ofsóknir á þessum grundvelli. Það að mismunun byggð á [...] finnist í sumum hlutum samfélagsins og að [...] sé ekki viðurkennd hjá ákveðnum hópum breyti ekki því mati kærunefndar. Við þetta mat hefur kærunefnd litið til hugsanlegra samlegðaráhrifa vegna uppruna [...] kæranda.

Með vísan til alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefndin að aðstæður hans þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 6. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal stjórnvald sem kemst að því að ákvæði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna eigi ekki við um útlending að eigin frumkvæði taka til skoðunar hvort veita eigi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. sömu laga. Þrátt fyrir að orðalag 1. mgr. 74. gr. kveði ekki með skýrum hætti á um veitingu dvalarleyfis má skilja af athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga nr. 80/2016, fyrirsögn greinarinnar og af 6. mgr. 37. gr. laganna að það hafi þó verið ætlunin með ákvæðinu. Kærunefnd telur því rétt að túlka ákvæðið sem heimild til veitingar dvalarleyfis þegar skilyrði þess eru uppfyllt.

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga má líta til mannúðarsjónarmiða ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga er fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við endurkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli. Kærandi kveðst vera […] en hann þurfi að halda […] leyndri því annars eigi hann á hættu að verða fyrir fordómum frá bæði […] og […]. Þá liggi dauðarefsing við […] í því samfélagi sem hann komi frá. Kærunefnd áréttar það sem áður hefur komið fram um aðstæður í heimaríki kæranda, þ.e. að mismunun byggð á [...] finnist í sumum hlutum samfélagsins og að […] sé ekki viðurkennd hjá ákveðnum hópum. Ljóst sé þó af gögnum sem kærunefnd hafi skoðað að töluvert frelsi sé í […] þegar kemur að þessum málum, og þá sérstaklega þegar miðað sé við önnur lönd í kring. Stjórnvöld framfylgi almennt lögum sem kveði á um bann við mismunun á [...] í landinu. Kærunefnd telur því að félagslegar aðstæður kæranda við endurkomu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Fjallað hefur verið um aðstæður í heimaríki kæranda en kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun vera við […] heilsu. Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Bann við endursendingu skv. 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli kæranda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

Anna Tryggvadóttir                                                 Þorbjörg Inga Jónsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta