Þróunarsjóður innflytjendamála
Tilgangur Þróunarsjóðs innflytjendamála er að efla þróunarverkefni og rannsóknir á sviði málefna innflytjenda með það að markmiði að auðvelda innflytjendum aðlögun að íslensku samfélagi og gera samfélaginu betur kleift að koma til móts við þá. Lögð er áhersla á að verkefni séu í samræmi við og í anda stefnu ríkisstjórnarinnar um aðlögun innflytjenda.
Opið er fyrir umsóknir til 1. desember 2024.
Vakin er sérstök athygli á að umsækjendur sækja um styrk á rafrænu formi á eyðublaðavef Stjórnarráðsins (næst þegar auglýst verður eftir umsóknum):
- Skrá mig inn á eyðublaðavef Stjórnarráðsins og sækja um
- Leiðbeiningar um notkun vefsins og hvernig finna skuli eyðublaðið
Við val verkefna sem hljóta styrk úr þróunarsjóði er áhersla lögð á verkefni sem efla lýðræðislega þátttöku, vinna gegn fordómum og efla færni í notkun íslensku í samskiptum.
Óskað er eftir umsóknum um verkefni sem ná til:
- Vinnu gegn fordómum, haturstjáningu, ofbeldi og margþættri mismunun.
- Virkar notkunar tungumáls í gegnum félagslega viðburði til stuðnings við hefðbundið tungumálanám. Áhersla er lögð á verkefni fyrir ungmenni á framhaldsskólaaldri og fyrir fullorðið fólk.
- Þátttöku innflytjenda og innlendra á jafningjagrunni, m.a. með því að stuðla að virkri lýðræðisþátttöku jafnt í félagasamtökum sem og stjórnmálum.
Félags- og hagsmunasamtök innflytjenda eru sérstaklega hvött til þess að sækja um.
Sú nýbreytni var gerð að einstaklingar gátu sótt uum styrki til verkefna, en ekki einungis til rannsókna líkt og verið hafði.
Sjá einnig:
- Úthlutun fyrir árið 2023
- Reglur um úthlutun styrkja úr Þróunarsjóði innflytjendamála
- Framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda
- Samantektir verkefna sem hlotið hafa styrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála
Development Fund for Immigrant Issues
The Fund's purpose is to enhance research and development projects in the field of immigrant issues with the goal of facilitating mutual integration of immigrants and Icelandic society.
Applications can be submitted in Icelandic or English.
We are calling for applications now.
Note that applications have to be submitted in electronic form on the Icelandic Government Offices’ website.
- Log in to the Icelandic Government Offices’ website to find the correct form and apply
- Instructions for using the site and finding the right form.
In selecting projects to be supported by the Development Fund for Immigrant Issues in 2024, the focus will be on projects which promote democratic participation, combat prejudice and promote use of Icelandic in social activities.
Grants will be awarded for projects which aim to:
- Act against prejudice, hate speech, violence, and multiple discrimination.
- Support language learning by using the language in social activities. Special emphasis is on projects for youth 16+ or adults.
- Equal participation of immigrants and host communities in joint projects such as promoting democratic participation in NGOs and in politics.
Immigrant associations and interest groups are especially encouraged to apply.
Grants are awarded to individuals, associations, organisations and public entities. Grants can cover up to 75% of the estimated total cost of a project.
See also:
- Funds allocated for 2023 (in Icelandic)
- Action plan for immigrant affairs (in Icelandic)
- Summaries of projects that have received grants from the Development Fund for Immigrant Issues (in Icelandic)
Sjá einnig:
Yfirlit um lög
Yfirlit um reglugerðir
Stofnanir
Fjölmenningardeild Vinnumálastofnunar hefur það hlutverk að greiða fyrir samskiptum fólks af ólíkum uppruna og efla þjónustu við útlendinga sem búsettir eru á Íslandi. Það hefur aðsetur á Ísafirði.
AÐ FLYTJA TIL ÍSLANDS
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.