Í tilefni af dómi Hæstaréttar um málefni Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
21.11.2024Íslenska ríkið var sýknað í Hæstarétti í gær af kröfu Reykjavíkurborgar í máli sem borgin höfðaði...
Innviðaráðuneytið
Sölvhólsgötu 7
101 Reykjavík
Sími: 545 8200
Netfang: [email protected]
Kt. 580417-0780
Afgreiðsla ráðuneytisins er opin virka daga kl. 8.30–16.00.
Verkefni innviðaráðuneytisins ná til fjölmargra sviða þjóðfélagsins og varða meðal annars samgöngur, sveitarstjórnar- og byggðamál, grunnskrár, húsnæðis- og mannvirkjamál og skipulagsmál. Nýtt og öflugt innviðaráðuneyti tekst á við nýja tíma. Hlutverk þess er að líta eftir, upplýsa og leiða samfélagið til aukinna lífsgæða.
Innviðaráðherra er Sigurður Ingi Jóhannsson. Ráðherra fer með yfirstjórn ráðuneytisins og ber ábyrgð á öllum stjórnarframkvæmdum þess. Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn ráðherra. Verkefni ráðuneytisins eru skilgreind í forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Verkefni innviðaráðuneytisins skiptast á fjórar skrifstofur en auk þess er unnið í teymum þvert á skrifstofur:
Íslenska ríkið var sýknað í Hæstarétti í gær af kröfu Reykjavíkurborgar í máli sem borgin höfðaði...
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra tók í dag fyrstu skóflustungu vegna framkvæmda við nýja...
Tillaga til þingsályktunar um húsnæðisstefnu fyrir árin 2024-2038 ásamt aðgerðaáætlun fyrir árin 2024-2028 var lögð fram á Alþingi í nóvember 2023. Með tillögu til þingsályktunar um húsnæðisstefnu er í fyrsta sinn sett fram heildstæð stefnumótun í húsnæðismálum á landsvísu sem hefur að leiðarljósi að tryggja að öll búi við húsnæðisöryggi í víðtækum skilningi.
Þingsályktun um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2024-2038 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2024-2028 var samþykkt á Alþingi þann 5. desember 2023. Með áætluninni er stuðlað að samræmdri stefnumótun ríkis og sveitarfélaga í málefnum sveitarfélaganna. Meginmarkmið áætlunarinnar eru að byggja upp öflug, sjálfbær sveitarfélög um land allt.
Verkefni innviðaráðuneytisins ná til fjölmargra sviða þjóðfélagsins og varða meðal annars samgöngur, sveitarstjórnar- og byggðamál, grunnskrár, póstþjónustu, húsnæðis- og mannvirkjamál og skipulagsmál. Innviðaráðherra fer með yfirstjórn ráðuneytisins. Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn ráðherra.
Sigurður Ingi tók við embætti innviðaráðherra 17. október 2024. Hann er einnig fjármála- og efnahagsráðherra frá 9. apríl 2024. Hann var innviðaráðherra frá 28. nóvember 2021. Hann er fæddur á Selfossi 20. apríl 1962. Maki er Ingibjörg Elsa Ingjaldsdóttir framkvæmdastjóri.
Sigurður Ingi hefur verið alþingismaður Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi síðan 2009. Hann var sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 23. maí 2013 til 7. apríl 2016, umhverfis- og auðlindaráðherra 23. maí 2013 til 31. desember 2014. Forsætisráðherra 7. apríl 2016 til 11. janúar 2017. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra 30. nóvember 2017 til 28. nóvember 2021.
Samráðsgátt stjórnvalda er á vefslóðinni island.is/samradsgatt. Þar er að finna áform um lagasetningu, drög að lagafrumvörpum og reglugerðum, skjöl um stefnumótun (t.d. drög að stefnum) og fleira. Hægt er að senda inn umsögn eða ábendingu og jafnframt er mögulegt að gerast áskrifandi að sjálfvirkri vöktun upplýsinga.