Grein umhverfis- og auðlindaráðherra í Fréttablaðinu - Hugleiðingar á Degi íslenskrar náttúru
Hugleiðingar á Degi íslenskrar náttúru
Um leið hafa menn áhyggjur af því að íslenskir ferðamannastaðir séu ekki í stakk búnir að taka við þeim fjölda ferðamanna sem sækja þá heim. Í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu er unnið að gerð frumvarps sem tekur til þess með hvaða hætti best verði að byggja upp og jafnframt að viðhalda ferðamannastöðum til lengri tíma í formi framkvæmdaáætlunar. Gert er ráð fyrir að leggja fram þingsályktunartillögu á Alþingi til tólf ára, þar sem fram kemur hvernig uppbygging innviða á ferðamannastöðum verður háttað.
Þá er unnið að því því í atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu að útfæra leiðir til að fjármagna uppbyggingu og viðhald á ferðamannastöðum. Mikilvægt er að hafa víðtækt samráð svo ekki myndist gjá á milli ferðaþjónustunnar og almennings í landinu.
Nauðsynlegt er að tryggja, eins og áður, sanngjarnan rétt almennings til frjálsrar farar svo hann geti notið náttúru landsins, án þess að gengið sé á hagsmuni sem þar kunna að liggja fyrir. Spyrja má hvort ekki þurfi að skilja betur að almannaréttinn, þ.e. rétt einstaklinga til frjálsrar farar um landið og svo þeirra sem taka gjald fyrir að fara með ferðamenn um land í eigu annarra.
Þá þurfum við að huga að fagurri ásýnd náttúrunnar og skilja ekkert eftir sem ekki á þar heima. Með aukinni umferð um landið eykst hættan á mengun lífríkis og vistkerfis, sem eru í raun undirstaða tilveru okkar. Með samstilltu átaki getum við í sameiningu gætt þess að halda landinu hreinu og umgangast náttúruna af virðingu. Þar þurfum við að byrja á okkur sjálfum og brýna fyrir börnum okkar þá hugsun að henda ekki rusli á almannafæri.
Megi Dagur íslenskrar náttúru verða okkur öllum ánægjulegur.