Hoppa yfir valmynd

Málefni atvinnuvegaráðuneytisins

Málefni atvinnuvegaráðuneytisins eru skilgreind í forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands (14.3.2025).

Atvinnuvegaráðuneyti fer með mál er varða:

  1. Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins.
  2. Sjávarútveg og veiði í ám og vötnum, þar á meðal:
    1. Stjórn fiskveiða, þ.m.t. vernd og nýtingu fiskstofna og annarra lifandi auðlinda hafs­ins og hafs­botnsins.
    2. Veiðigjöld.
    3. Rannsóknir og eftirlit með vernd og nýtingu fiskstofna og annarra lifandi auðlinda hafsins og hafsbotnsins.
    4. Hafrannsóknastofnun.
    5. Framkvæmd fiskveiðisamninga við erlend ríki.
    6. Fiskvinnslu og aðra vinnslu úr sjávarfangi.
    7. Skiptaverðmæti sjávarafla.
    8. Uppboðsmarkað sjávarafla.
    9. Lax- og silungsveiði.
    10. Rannsóknir á lífríki í ám og vötnum og ráðgjöf um nýtingu þeirra.
    11. Fiskræktarsjóð.
    12. Matsnefnd samkvæmt lögum um lax- og silungsveiði.
    13. Nýsköpun og þróun í sjávarútvegi.
    14. Fiskistofu.
    15. Verðlagsstofu skiptaverðs.
    16. Úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna.

  3. Eldi og ræktun nytjastofna í sjó eða ferskvatni, þar á meðal:
    1. Fiskeldi.
    2. Gjaldtöku vegna fiskeldis í sjó.
    3. Fiskeldissjóð.
    4. Umhverfissjóð sjókvíaeldis.

  4. Landbúnað, þar á meðal:
    1. Framleiðslu landbúnaðarafurða.
    2. Búfjárhald.
    3. Verðlagningu og sölu á búvörum.
    4. Velferð dýra.
    5. Varðveislu erfðaauðlinda í landbúnaði og yrkisrétt.
    6. Framkvæmd búnaðarlaga.
    7. Stuðning ríkisins við framleiðslu og markaðsmál, þ.m.t. framkvæmd búvörulaga.
    8. Almenn jarðamál, ábúðarmál, afrétti, fjallskil og girðingar, þ.m.t. málefni úttektar­manna og yfirmatsnefndar samkvæmt ábúðarlögum.
    9. Nýtingu hlunninda jarða.
    10. Eftirlit með sáðvöru og áburði.
    11. Hagþjónustu landbúnaðarins.
    12. Úrskurðarnefndir á sviði landbúnaðar.
    13. Bjargráðasjóð.

  5. Matvæli og matvælaöryggi, þar á meðal:
    1. Inn- og útflutning landbúnaðarafurða.
    2. Inn- og útflutning dýra og plantna og erfðaefna þeirra.
    3. Dýralæknaþjónustu, þ.m.t. starfsleyfi dýralækna.
    4. Heilbrigðiseftirlit með framleiðslu, vinnslu, inn- og útflutningi og markaðssetningu matvæla og fóðurs.
    5. Heilbrigði dýra og varnir gegn dýrasjúkdómum.
    6. Heilbrigði plantna og varnir gegn plöntusjúkdómum.
    7. Matvælarannsóknir.
    8. Matvælasjóð.
    9. Afurðasjóð Grindavíkurbæjar.
    10. Matvælastofnun.

  6. Viðskiptalíf, almenna lagaumgjörð, þar á meðal:
    1. Opinberar eftirlitsreglur.
    2. Rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu.
    3. Frum- og milliinnheimtu peningakrafna.
    4. Víxla, tékka og skuldabréf.
    5. Fyrningu kröfuréttinda.
    6. Samningarétt.
    7. Ábyrgðarmenn.
    8. Viðskiptaleyndarmál.
    9. Félagarétt, þ.m.t. bókhald, endurskoðendur og ársreikninga.
    10. Fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri.
    11. Skráningu fyrirtækja og félaga og málefni fyrirtækjaskrár, ársreikningaskrár og almanna­heillafélagaskrár.
    12. Skráningu raunverulegra eigenda.
    13. Félög til almannaheilla.
    14. Sjálfseignarstofnanir sem stunda atvinnurekstur.
    15. Framkvæmd útboða.
    16. Samkeppnismál.
    17. Ríkisaðstoð.
    18. Samkeppniseftirlitið.
    19. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála.
    20. Staðla og Staðlaráð Íslands.
    21. Faggildingu.
    22. Löggildingu endurskoðenda.
    23. Endurskoðendaráð.

  7. Ferðamál, verslun og þjónustu, þar á meðal:
    1. Skipan ferðamála.
    2. Ferðagjafir.
    3. Ferðamálastofu.
    4. Framkvæmdasjóð ferðamannastaða.
    5. Veitingastaði, gististaði og skemmtanahald.
    6. Bílaleigur.
    7. Skapandi greinar í þágu atvinnuþróunar.
    8. Sölu fasteigna og skipa.
    9. Eftirlitsnefnd fasteignasala.
    10. Verslunarskrár, firmu og prókúruumboð.
    11. Umboðssöluviðskipti.
    12. Mælingar, mæligrunna og vigtarmenn.

  8. Neytendamál, þar á meðal:
    1. Eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu.
    2. Ráðstafanir gegn óréttmætri takmörkun á netumferð o.fl.
    3. Vöruöryggi, þ.m.t. vörur unnar úr eðalmálmum.
    4. Neytendalán.
    5. Lausafjárkaup, fasteignakaup, neytendakaup og þjónustukaup.
    6. Úrskurðaraðila á sviði neytendamála.
    7. Pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun.
    8. Ferðatryggingasjóð.
    9. Skiptileigusamninga fyrir afnot af húsnæði í orlofi eða frístundum.
    10. Neytendasamninga.
    11. Neytendastofu.
    12. Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa.
    13. Áfrýjunarnefnd neytendamála.

  9. Iðnað, þar á meðal:
    1. Handiðnað og annan iðnað sem eigi ber undir annað ráðuneyti.
    2. Stóriðju og fjárfestingarsamninga.
    3. Starfsréttindi í iðnaði.
    4. Löggildingu starfsheita í tækni- og hönnunargreinum.
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta