Dóms- og kirkjumálaráðherra kynnti skýrslu um víðtækar öryggisráðstafanir hér á landi fyrir starfshópi um hættumat
Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra kynnti hinn 13. desember starfshópi utanríkisráðherra um hættumat fyrir Ísland skýrslu um víðtækar öryggisráðstafanir hér á landi.
Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra kynnti hinn 13. desember starfshópi utanríkisráðherra um hættumat fyrir Ísland skýrslu um víðtækar öryggisráðstafanir hér á landi.
Í skýrslunni er gerð grein fyrir hlut stofnana ríkisins við gæslu öryggis lands og þjóðar en öryggisstofnanir ríkisins starfa á vegum dóms- og kirkjumálaráðuneytisins.
Í skýrslunni er gerð grein fyrir aðgerðum af hálfu dóms- og kirkjumálaráðuneytisins við framkvæmd aðgerða á innlendum vettvangi í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 26. september 2006 um nauðsynlegar ráðstafanir vegna brottfarar bandaríska varnarliðsins á síðasta ári.
Þá er gerð grein fyrir hlutverki og markmiðum löggæslu og öryggisstofnana ríkisins. Til að gegna hlutverki sínu leggur dóms- og kirkjumálaráðherra áherslu á eftirfarandi meginatriði:
- Styrk löggæslu- og öryggisstofnana.
- Samstarf og samhæfða stjórn aðgerða.
- Öflugt alþjóðasamstarf við löggæslu- og öryggisstofnanir.
Að lokum er í skýrslunni gerð ítarleg grein fyrir alþjóðlegu öryggissamstarfi á vegum dóms- og kirkjumálaráðuneytisins og stofnana þess og viðamiklum verkefnum sem eru í vinnslu á sviði öryggismála.
Sjá skýrsluna hér (pdf)