Kynningarfundur um nýtt öryggisfangelsi í landi Stóra-Hrauni
Dómsmálaráðherra boðar til kynningar á nýju öryggisfangelsi í landi Stóra Hrauns miðvikudaginn 20. nóvember kl. 19:30.
Viðburðurinn fer fram í Rauða húsinu, Eyrarbakka, Búðarstíg 4.
- Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra flytur opnunarávarp.
- Birgir Jónasson, settur forstjóri Fangelsismálastofnunar reifar stöðuna í fullnustumálum og þörfina fyrir nútímalegt fangelsi.
- Nína Baldursdóttir, verkefnastjóri hjá Framkvæmdasýslunni-Ríkiseignum kynnir frumathugun og framgang verksins.
Fundurinn er öllum opinn og tekið verður við spurningum að loknum erindum.
Fundurinn er í beinu streymi á Youtube
Um ráðuneytið
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.