Skrifstofa almanna- og réttaröryggis
Skrifstofustjóri: Ragna Bjarnadóttir
Staðgengill skrifstofustjóra: Drífa Sigurðardóttir
Skrifstofan hefur umsjón með þeim málaflokkum í íslenskri stjórnsýslu er varða mikilvæga þætti réttarvörslukerfisins, þ.e.a.s. málefni löggæslu, ákæruvald og fullnustu og öryggi almennings, svo sem almannavarnir og leit og björgun. Skrifstofan sinnir stefnumótun og úrlausn mála á málefnasviðinu, hefur umsjón með löggjöf og fylgist með því að hún taki til allra nauðsynlegra þátta, vinnur að því að stjórnsýsluframkvæmd sé í samræmi við lög og að markmið stefnumótunar ráðherra náist með skilvirkum og markvissum hætti.
Mikilvægi alþjóðlegs samstarfs á málefnasviðinu fer vaxandi, m.a. á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, Evrópuráðsins, Schengen-samstarfsins, FATF (Financial Action Task Force) og EES-samningsins. Þá tekur Ísland þátt í samstarfi innan OECD og Eystrasaltsráðsins, einkum á sviði aðgerða gegn brotastarfsemi. Einnig taka íslensk stjórnvöld þátt í HAGA-samstarfi Norðurlandanna á sviði almannaöryggis og viðbúnaðar.
Málaflokkar skrifstofunnar eru eftirfarandi:
- Lögregla
- Landhelgisgæsla
- Landamæramálefni og Schengen
- Skipulögð glæpastarfsemi
- Mansal
- Peningaþvætti
- Málefni ákæruvalds
- Alþjóðleg réttaraðstoð í sakamálum, þ.m.t. réttarbeiðnir og framsal
- Fangelsismál og fullnusta refsinga, þ.m.t. flutningur fanga og náðunarnefnd
- Almannavarnir
- Vöktun, netöryggi og vernd mikilvægra samfélagsinnviða
- Vopnamálefni
- Öryggisþjónusta í atvinnuskyni
- Öryggis- og björgunarmál, leit og björgun
- Varnarmál
Ofangreind málefni varða öryggismál í víðum skilningi og hefur áhersla verið lögð á eftirfarandi þætti:
a) að efla löggæslu og öryggisstofnanir með skýrum starfsramma og áætlanagerð,
b) að stuðla að samhæfingu og samstarfi þeirra og
c) að stuðla að virku samstarfi þeirra við systurstofnanir í nágrannaríkjum um öryggi á norðurslóðum.
Dómsmálaráðuneytið
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.