Skrifstofu jafnréttis- og mannréttindamála
Skrifstofustjóri: Steinunn Valdís Óskarsdóttir
Staðgengill skrifstofustjóra: Rán Ingvarsdóttir
Á skrifstofu jafnréttis- og mannréttindamála starfa sex sérfræðingar auk skrifstofustjóra. Skrifstofan fer með stefnumótun á sviði jafnréttis- og mannréttindamála, sinnir alþjóðastarfi og hefur fyrirsvar fyrir hönd Stjórnarráðsins gagnvart einstaklingum, hagsmunaaðilum og félagasamtökum á sviði jafnréttismála. Jafnframt sinnir skrifstofa jafnréttis- og mannréttindamála almennri upplýsingagjöf til Alþingis og nefnda þingsins. Kærunefnd jafnréttismála er vistuð á skrifstofunni. Þá hefur umgjörð um málefni hinsegin fólks orðið sívaxandi hluti af starfi skrifstofunnar með nýjum jafnréttislögum. Skrifstofan vinnur í samstarfi við önnur ráðuneyti til að tryggja samhæfingu og skilvirka framkvæmd þar sem jafnréttis- og mannréttindamál snerta starfssvið allra ráðuneyta.
Samkvæmt forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands nr. 5/2025 fer dómsmálaráðuneyti með mál er varða jafnréttis- og mannréttindamál, nánar tiltekið:
- Mannréttindi og mannréttindasáttmála, að undanskildum samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
- Jafnréttismál, þar á meðal:
- Jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna
- Stjórnsýslu jafnréttismála
- Jafna meðferð utan vinnumarkaðar
- Kynrænt sjálfræði
- Jafnréttisstofu
- Kærunefnd jafnréttismála
- Jafnréttissjóð Íslands
- Sérfræðinefnd um breytingar á kynskráningu barna og varanlegar breytingar á ódæmigerðum kyneinkennum barna
Dómsmálaráðuneytið
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.