Skipulag félags- og húsnæðismálaráðuneytisins
Æðsti yfirmaður félags- og húsnæðismálaráðuneytisins er félags- og húsnæðismálaráðherra. Æðsti embættismaður ráðuneytisins er ráðuneytisstjóri, sem stýrir daglegum rekstri þess.
Fjallað er um verkefnasvið félags- og húsnæðismálaráðuneytisins í forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta (15.3.2025)
Í ráðuneytinu vinnur öflugur hópur fólks sem skiptist á fimm skrifstofur:
-
Skrifstofu ráðuneytisstjóra
-
Skrifstofu fjárlaga- og rekstrar
-
Skrifstofu félags- og lífeyrismála
-
Skrifstofu húsnæðis- og skipulagsmála
-
Skrifstofu vinnumarkaðar
Því til viðbótar eru fjögur fagteymi starfrækt innan ráðuneytisins og liggja þau þvert á skrifstofurnar: Teymi um stefnumótun, nýsköpun, rannsóknir eftirfylgni; teymi um virkni; teymi um fjárflæði, samninga og kostnaðarendurmat; og teymi um samspil lífeyris og velferðarþjónustu.
Um félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.