Fjárfestingaáætlun á fjárlög
Grein í Fréttablaðinu 9. nóvember 2012 eftir Katrínu Júlíusdóttur, fjármála- og efnahagsráðherra og Dag B. Eggertsson, varaformann Samfylkingarinnar.
Fjármögnun fjárfestingaáætlunar ríkisstjórnarinnar sem kynnt var sl. vor hefur nú verið tryggð, en áætlunin var sett fram með fyrirvara um tekjur af veiðigjöldum og arði úr bönkum. Hvort tveggja hefur nú gengið eftir. Á næsta ári fara því alls 10,3 milljarðar króna á fjárlögum næsta árs í verkefni fjárfestingaáætlunar sem auka munu fjárfestingu og styðja við vaxandi atvinnugreinar til að skapa hagvöxt og ný störf.
Veiðigjald í samgöngur og nýsköpun
Í fjárfestingaáætlun er arði þjóðarinnar af fiskveiðiauðlindinni veitt til samgöngubóta um land allt. Þannig var hægt að flýta Norðfjarðar- og Dýrafjarðargöngum og öðrum brýnum vegabótum og leggja aukið fé til hjólreiða á samgönguáætlun, svo fátt eitt sé talið. Háskóla- og atvinnulíf framtíðarinnar var jafnframt stóreflt með auknu fé til rannsóknasjóðs og tækniþróunarsjóðs, auk markáætlana sem beinast að sérstökum áherslusviðum í vísinda- og atvinnumálum. Alls verða framlög til þessara þátta 3,8 milljarðar á næsta ári.
Hinar skapandi greinar
Önnur verkefni á fjárfestingaáætlun eru fjármögnuð með arði úr bönkum. Framlög í Kvikmyndasjóð Íslands verða hækkuð úr 530 í 1.000 m.kr á ári. Þetta hefur margföldunaráhrif því fyrir hverja krónu sem þar er lögð fram sækja kvikmyndagerðarmenn um þrjár til viðbótar í verkefni sín erlendis frá. Jafnframt verður komið á fót verkefnasjóði skapandi greina sem styrkja mun hönnun og myndlist auk þess sem framlög til tónlistar og bókmennta verða aukin en alls munu 250 m.kr árlega renna í verkefnasjóði skapandi greina.
Græna hagkerfið
Til að fylgja eftir tillögum sem Alþingi sameinaðist um til eflingar grænu atvinnulífi á Íslandi verður varið 3,5 milljörðum næstu þrjú ár og þar af um milljarði á næsta ári. Mikil sóknarfæri eru á þessu sviði og til að örva fjárfestingar verður settur á laggirnar grænn fjárfestingasjóður sem fjárfesta mun í fyrirtækjum í umhverfisvænni starfsemi. Hann fær milljarð í stofnfé úr ríkissjóði en stefnt er að því að þrír fjórðu hlutar stofnfjár komi annars staðar frá. Græn skref ríkisstofnana, stuðningur og hvati til að grænka fyrirtæki og verkefni á sviði orkuskipta fá einnig framlög til að auka samkeppnishæfni Íslands með umhverfislausnum.
Efling innviða í ferðamannaþjónustu
Sérstök áhersla er á að styðja við uppbyggingu ferðaþjónustu um landið. Veittar verða 500 milljónir til viðbótar í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða næstu þrjú árin. Auk þess sem gert verður sérstakt átak í að byggja upp innviði þjóðgarða og viðkvæmra náttúrusvæða fyrir andvirði 250 m.kr á ári. Þá er ráðgert að reisa Kirkjubæjarstofu, sem verður anddyri að Vatnajökulsþjóðgarði. Hús íslenskra fræða verður hús yfir handritin okkar sem geta orðið svipað aðdráttarafl og önnur fegurstu listaverk heimsins og peningar verða settir í að koma á fót langþráðri náttúruminjasýningu. Þá er tryggt fé til endurnýjunar á nýjum Herjólfi og endurbóta í Landeyjahöfn en allt eru þetta einnig dæmi um ferðaþjónustutengdar fjárfestingar.
Úr vörn í sókn með framtíðarsýn
Fjárfestingaáætlun er hluti af efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar. Hún miðar að því að auka fjárfestingar og draga úr atvinnuleysi. Hún felur einnig í sér nýja og skýra atvinnupólitík. Hún byggir á þekkingu og hugvitsgreinum. Hún er skapandi og hún er græn. Því fer hins vegar fjarri að ríkisstjórnin eigi fjárfestingaáætlunina ein. Þvert á móti byggir hún á vandaðri og viðamikilli stefnumótun sem hundruð Íslendinga um land allt hafa komið að í gegnum Sóknaráætlun fyrir Ísland, þjóðfundi hennar og sérfræðivinnu. Fjárfestingaáætlun er því sameign okkar allra, til marks um nýja tíma og nýja framtíðarsýn og þann metnað og kraft sem við viljum að einkenni næstu ár á Íslandi.
Framlög til verkefna innan fjárfestingaáætlunar árið 2013 (m.kr.)
Verkefni fjármögnuð með veiðigjaldi og leigutekjum skv. fjárlagafrumvarpi 2013 4.200
Samgönguframkvæmdir, aukning 2.500
Rannsóknar- og tækniþróunarsjóður, aukning 1.300
Sóknaráætlun landshluta* 400
Ný verkefni fjármögnuð með arðgreiðslum við 2. umr. fjárlagafrumvarps 6.130
Fasteignir 3.430
Fangelsi 1.000
Hús íslenskra fræða 800
Herjólfur/Landeyjahöfn 640
Náttúruminjasafn/sýning 500
Kirkjubæjarstofa 290
Húsverndarsjóður, aukning 200
Græna hagkerfið 1.030
Grænn fjárfestingasjóður, nýtt 500
Græna hagkerfið og grænkun fyrirtækja, nýtt 280
Græn skref og vistvæn innkaup, nýtt 150
Grænar fjárfestingar, nýtt 50
Orkuskipti í skipum, nýtt 50
Skapandi greinar 920
Kvikmyndasjóður, aukning 470
Verkefnasjóðir skapandi greina, nýtt 250
Netríkið Ísland, aukning 200
Ferðaþjónusta 750
Uppbygging ferðamannastaða, aukning 500
Innviðir friðlýstra svæða, nýtt 250
Samtals 10.330