Opin gögn og upplýst þjóð
Hvað greiði ég fyrir mennta- og heilbrigðiskerfið? Hvernig verja ráðherrar ráðstöfunarfé sínu? Við hvaða fyrirtæki skipta opinberar stofnanir? Oft heyrast spurningar á borð við þessar en misjafnt er hvort opinber gögn liggja fyrir sem svara þeim.
Að mínu mati eiga upplýsingar sem varða það hvernig skattfé almennings er varið að vera öllum aðgengilegar. Með tölvutækni nútímans er það líka vel mögulegt. Á þetta hefur Bretinn Tim Berners-Lee, sem oft er nefndur faðir internetsins, bent. Hann hefur nýlega sagt að næsta bylting á netinu muni snúast um opið aðgengi að gögnum. Árið 2009 skoraði Tim á stjórnvöld, menntastofnanir og fyrirtæki að opna gögn. Áskorunin snýst um að birta fjölda gagnapakka á netinu. Þar eru þeir aðgengilegir öllum, þeim má dreifa og miðla á hvaða sniði sem er, undir opnum leyfisskilmálum.
Fyrstu skrefin
Á örfáum árum hefur orðið mikil þróun í þessum málaflokki um allan heim. Bretar og Bandaríkjamenn hafa verið í broddi fylkingar og lagt áherslu á aukið aðgengi að gögnum. Sem dæmi birta bresk stjórnvöld meira en 9.000 gagnapakka á vefsíðunni http://data.gov.uk. Þar getur fólk til dæmis skoðað útgjöld ráðuneyta, stofnana og sveitarfélaga. Þá má nálgast annars konar upplýsingar, t.d. landfræðilegar.
Hér á landi erum við skemmra á veg komin í þessum málum. Í því skyni að auka birtingu fjárhagsupplýsinga ríkisins setti ég á dögunum, ásamt forsætisráðherra, á fót starfshóp sem vinna á tillögur í þessum efnum.
Hópurinn er að skoða hver ættu að vera fyrstu skref ráðuneytisins í birtingu fjárhagsupplýsinga og skilar hann tillögum sínum á næstu vikum.
Vonast er til að vinna hópsins geti nýst í framhaldinu við stefnumótun og opnun fleiri gagnapakka. Takmarkið ætti að mínu mati að vera að gögn um tekjur og útgjöld ríkisins séu aðgengileg hverjum þeim sem vill kynna sér þau. Ný upplýsingalög gefa tóninn fyrir þessa vinnu. Þar er skýrt tekið fram að persónugreinanleg gögn eru undanskilin birtingu.
Nýsköpun og hagræðing
Fyrir utan sjónarmið um lýðræði og gagnsæi sem liggja að baki birtingu opinberra gagna eru önnur veigamikil rök. Opin gögn geta stuðlað að nýsköpun í samfélaginu. Gott dæmi eru fyrirtæki eins og Datamarket og vefsíðan Gogn.in, en þau vinna með þau gögn sem eru aðgengileg í dag. Þá má einnig stuðla að hagræðingu í opinberri stjórnsýslu, t.d. með sjálfsafgreiðslu á fyrirspurnum, vinnusparnaði við gagnagreiningu og einföldun á mati áhrifa efnahagslegra aðgerða.
Frjáls aðgangur að gögnum á borð við fjárhagsupplýsingar ríkisins leiðir til upplýstara samfélags og aukins valds almennings. Birting þeirra veitir aðhald og hvetur til ráðdeildar. Þess vegna er hún brýn.