Anna Rut, Anna Sigrún og Sveinbjörn ráðin aðstoðarmenn ríkisstjórnarinnar
24.01.2025Anna Rut Kristjánsdóttir, Anna Sigrún Baldursdóttir og Sveinbjörn Finnsson hafa verið ráðin...
Forsætisráðuneytið
Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg
101 Reykjavík
Sími: 545 8400
Netfang: [email protected]
Kt. 550169-1269
Afgreiðsla ráðuneytisins í Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg er opin virka daga kl. 8.30–16.00.
Netföng starfsfólksForsætisráðuneytið hefur frá upphafi verið í Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg þar sem ríkisstjórnin fundar reglulega. Starfsemi á vegum ráðuneytisins fer nú einnig fram í nærliggjandi húsum að Hverfisgötu 4–6. Aðalskrifstofa forsætisráðuneytisins skiptist samkvæmt skipuriti í skrifstofu yfirstjórnar, skrifstofu þjóðhagsmála, skrifstofu löggjafarmála og skrifstofu fjármála.
Forsætisráðherra fer með yfirstjórn ráðuneytisins og ber ábyrgð á öllum stjórnarframkvæmdum þess. Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn ráðherra.
Þær stofnanir sem heyra undir ráðuneytið eru Seðlabanki Íslands, Ríkislögmaður, Hagstofa Íslands, Umboðsmaður barna, Óbyggðanefnd og Jafnréttisstofa.
Verkefni ráðuneytisins eru skilgreind í forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Þau varða stjórnskipan lýðveldisins Íslands og Stjórnarráðið í heild, málefni ríkisstjórnar og ráðherranefnda, málefni ríkisráðs, þjóðhagsmál, löggjafarmálefni, stjórnarfar almennt, þjóðartákn, mannréttindamál, jafnréttismál og fleira. Forsætisráðuneytið fer auk þess með ýmis málefni og tilfallandi verkefni er tengjast stöðu og störfum forsætisráðherra sem oddvita ríkisstjórnarinnar og samræmingu og samráð er lýtur að samstarfi ráðuneyta á ýmsum sviðum.
Forsetaúrskurður um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands
Forsætisráðherra stýrir ríkisstjórnarfundum enda er hann skv. 17. gr. stjórnarskrár „sá ráðherra, er forseti lýðveldisins hefur kvatt til forsætis“. Hann fer einnig með forsetavald í fjarveru forseta Íslands, ásamt forseta Alþingis og forseta Hæstaréttar. Ráðherranefndir starfa undir forystu forsætisráðherra, auk þess sem ýmsar aðrar nefndir, verkefnishópar og ráð heyra undir ráðuneytið.
Anna Rut Kristjánsdóttir, Anna Sigrún Baldursdóttir og Sveinbjörn Finnsson hafa verið ráðin...
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur skipað fjögurra manna starfshóp sem á að skila tillögum...
Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins var undirrituð 21. desember 2024.
Verkefni forsætisráðuneytisins varða stjórnskipan lýðveldisins Íslands og Stjórnarráðið í heild. Málefni ríkisstjórnar og ráðherranefnda, málefni ríkisráðs, þjóðhagsmál, löggjafarmálefni, stjórnarfar almennt, þjóðartákn og fleira, samanber forsetaúrskurð um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Forsætisráðuneytið fer auk þess með ýmis málefni og tilfallandi verkefni tengd stöðu og störfum forsætisráðherra sem oddvita ríkisstjórnarinnar.
Forsætisráðherra fer með yfirstjórn ráðuneytisins. Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn ráðherra.
Kristrún tók við embætti forsætisráðherra 21. desember 2024. Hún hefur setið á Alþingi fyrir Samfylkinguna síðan 2021 og verið formaður flokksins frá 2022.