Réttur lánþega tryggður
Eitt helsta viðfangsefni ríkisstjórnar og Alþingis allt frá hruni hefur verið að leita leiða til að verja heimili landsins fyrir þeim skelfilegu afleiðingum sem hrunið hafði í för með sér fyrir íslenskt efnahagslíf.
Vegna bágrar stöðu ríkissjóðs og lagalegrar óvissu hefur ríkisvaldið ekki átt hægt um vik í þessum efnum. Engu að síður er óhætt að fullyrða að aldrei fyrr hafa stjórnvöld staðið fyrir jafn umfangsmiklum og víðtækum aðgerðum til að koma til móts við skuldug heimili. Samtals hefur nú um 260 milljörðum króna verið létt af skuldugum heimilum, ekki síst vegna endurútreiknings gengisbundinna lána.
Með nýjum dómi Hæstaréttar er þeim lánþegum, sem tóku ólögleg gengisbundin lán fyrir hrun, tryggður enn frekari réttur til leiðréttinga en hingað til hefur legið fyrir. Því ber að fagna enda hefur dómurinn líklega í för með sér að skuldir heimila munu lækka um tugi milljarða króna til viðbótar og staða þeirra batna sem því nemur.
Breytingar á lögum um vexti og verðtryggingu vegna ólöglegra gengislána (Nr. 151/ 2010) voru ekki síst gerðar með það í huga að tryggja lánþegum í hvívetna þann rétt sem dómar Hæstaréttar gáfu leiðsögn um. Í þeim efnum hafa stjórnvöld gengið eins langt og þau hafa talið mögulegt, án þess að skapa ríkissjóði og þar með skattgreiðendum skaðabótaábyrgð.
Með lögunum var stigið mikilvægt skref til að tryggja rétt tugþúsunda heimila sem voru með gengisbundin lán í ýmsum formum og óvíst var hvort Hæstiréttur teldi lögmæt eða ólögmæt. Þar var einnig lögð til grundvallar hröð meðferð og jafnræði og á grundvelli þeirra hafa skuldir lánþega verið lækkaðar um vel á annað hundrað milljarða króna á mjög skömmum tíma. Mikilvægt er einnig að hafa í huga að alltaf lá skýrt fyrir og liggur í raun enn, að lög um þessi efni gátu aldrei og áttu aldrei að rýra rétt lánþega að neinu leyti.
Lögin byggðu á fyrri leiðsögn Hæstaréttar um að reikna ætti lægstu vexti Seðlabankans í stað hinna erlendu vaxta allt frá upphafi lántöku. Hin nýja leiðsögn dómsins nú er hins vegar sú að ekki sé heimilt að krefjast hærri vaxta vegna þess sem liðið er hafi vextirnir verið greiddir og fullnaðarkvittun liggi fyrir.
Um leið og ég fagna þeim aukna rétti og þeim bætta hag sem nýfallinn dómur Hæstaréttar færir þeim tugþúsundum heimila sem tekið höfðu ólögleg gengisbundin lán, kalla ég eftir samstöðu og yfirvegun allra við úrlausn málsins og álitaefna sem upp koma. Nú er mikilvægt að fjármálafyrirtækin og stjórnvöld sameinist um að leysa með sanngjörnum hætti úr málinu, til hagsbóta fyrir lánþega og heimili þessa lands.