Hoppa yfir valmynd
23. febrúar 2012 ForsætisráðuneytiðJóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra 2009-2013

Skýrsla forsætisráðherra um greinargerð Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands

Frú forseti
Áður en ég vík að þeirri skýrslu sem hér er til umræðu vil ég gera nokkra grein fyrir aðdraganda þess að hún var gerð.

Þann 1. október sl. afhenti formaður Hagsmunasamtaka heimilanna mér  undirskriftalista þar sem krafist er afnáms verðtryggingar og leiðréttingar á stökkbreyttum lánum til heimilanna. Með kröfunum fylgdu  fjórar mismunandi leiðir til leiðréttingar á lánum.  

Á fundi ríkisstjórnarinnar þann 4. október sl. var samþykkt tillaga mín um að fela Hagfræðistofnun Háskóla Íslands að meta tillögurnar. Þar legg ég til að Hagfræðistofnun verði falið að meta áhrif tillagna Hagsmunasamtaka heimilanna á  þjóðarhag.

Á sama tíma var í umræðum um skuldavanda heimilanna sífellt farið frjálslega með tölur um þann afslátt af fasteignalánum heimilanna sem nýju bankarnir fengu þegar þeir keyptu þau af þrotabúum gömlu bankanna. Og ríkisstjórninni var meðal annars legið á hálsi fyrir að beita sér ekki fyrir því  að svigrúmið sem afslátturinn skapaði yrði full nýtt til afskrifta. Efast var um opinberar tölur í þessu sambandi og því haldið fram fullum fetum að svigrúmið vegna þessa væri yfir 300 milljarðar króna.

Ég taldi því afar mikilvægt  fyrir umræðuna og til þess að mögulegt væri að ná samstöðu um aðgerðir til handa skuldugum heimilum að fá á hreint í eitt skipti fyrir öll hvert þetta svigrúm bankanna væri vegna afsláttarins af fasteignalánum heimilanna og undir þá kröfu tóku margir, meðal annars Hagsmunasamtök heimilanna.

Að höfðu samráði við Hagsmunasamtök heimilanna var leitað til Ríkisendurskoðunar um að stofnunin tæki að sér að upplýsa um hvert þetta svigrúm væri. Ríkisendurskoðun hafnaði þeirri ósk og lá þá beint við að fela Hagfræðistofnun að takast á við verkefnið.  Af hálfu forsætisráðuneytisins var lögð áhersla á að Hagfræðistofnun leitaði til Fjármálaeftirlitsins og Seðlabankans um upplýsingar og hafði ráðuneytið milligöngu til að tryggja örugg samskipti. Jafnframt lagði ráðuneytið áherslu á að Hagfræðistofnun hefði samráð við Hagsmunasamtök heimilanna og lánveitendur um útfærslu verkefnisins.

Hagfræðistofnun skilaði greinargerð sinni 27. janúar sl. Seðlabankinn og Fjármálaeftirlit lásu yfir drög að greinargerðinni og veittu Hagfræðistofnun mikilvægar upplýsingar við vinnslu hennar. Hagfræðistofnun átti einnig nokkra fundi með Hagsmunasamtökum heimilanna og lánveitendum. Þá var ýmsum aðilum gefinn kostur á að gera athugasemdir við drög að greinargerðinni og tók Hagfræðistofnun þær til greina eftir atvikum.

Af hálfu stjórnvalda hefur hins vegar verið skýrt að hér er um að ræða greinargerð sem Hagfræðistofnun ein ber ábyrgð á. Eins og hér hefur verið rakið var eins faglega staðið að þessu og frekast var unnt.

Niðurstaða greinargerðar Hagfræðistofnunar er sú að  fasteignalán gömlu bankanna hafi verið færð yfir í þá nýju með 95 milljarða króna afslætti.  Byggir niðurstaðan  á því að bera saman fjárhæð  fasteignalána gömlu bankanna í lok september 2008 og í lok október  hjá  nýju bönkunum.   

Í stórum dráttum er hér staðfest svar efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn hér á þingi,  þótt önnur aðferð hafi verið notuð til að finna svarið. Niðurstaða Hagfræðistofnunar sýnir svart á hvítu að fullyrðingar sem ég rakti hér áðan um miklu meira svigrúm vegna afsláttarins standast ekki.

Hagfræðistofnun staðfestir einnig að allur afslátturinn sem nýju bankarnir fengu þegar þeir keyptu umrædd lán hefur þegar verið nýttur til að færa niður fasteignaskuldir heimilana og gott betur.

Um síðustu áramót var staðan þannig að yfir 25.000 fasteignalán heimila höfðu verið færð niður um hátt í 160 milljarða króna, en svigrúmið vegna umrædds afsláttar var sem sagt um 95 milljarðar.

Um þetta atriði þarf því ekki að deila, hvort sem menn telja þörf á frekari afskriftum eða ekki. Sú umræða þarf hins vegar að byggjast á þeim grunni að einhver mun þurfa að greiða fyrir þær afskriftir.

Sannarlega má færa fyrir því rök að fjárhagsleg staða fjármálastofnana geri þeim kleift að standa að enn frekari aðgerðum í þágu skuldsettra heimila.  Þeim fjármunum getur ríkisvaldið, eða við hér á Alþingi,  hins vegar ekki ráðstafað með neinum hætti  án samkomulags við umræddar fjármálastofnanir, nema þá með skattlagningu.

Ég leyfi mér hins vegar að hvetja  þau eindregið til að ganga eins langt í þessum efnum og mögulegt er til niðurfellinga skulda og sátt um skuldaaðlögun heimilanna. Það er ekki síst í þeirra þágu að sátt náist um þessi mál þegar til framtíðar er litið.

Þá sný ég mér að mati Hagfræðistofnunar á tillögum Hagsmunasamtaka heimilanna. Tillögur Hagsmunasamtakanna fela í sér að skuldir heimilanna verði færðar niður um sem nemur hækkun verðlags á tímabilinu frá 1. janúar 2008 til 1. október 2011 að frádreginni  hækkun á þessum tíma sem svarar til  4% ársverðbólgu,  þ.e. efri viðmiðunarmörk verðbólgumarkmiðs Seðlabanka Íslands.  

Þessi munur svarar til þess að skuldir  lækki um 18,7 prósent að mati Hagfræðistofnunar.  Niðurstaða  Hagfræðistofnunar er sú að tillögur Hagsmunasamtakanna feli í sér niðurfærslu um 200 milljarða króna. Það yrði þá  til viðbótar við þá 160 milljarða sem fasteignaskuldir heimilana hafa þegar verið lækkaðar um. Tillögur Hagsmunasamtakanna myndu kosta  Íbúðalánasjóð 122 milljarða króna, lífeyrissjóðina 33 milljarða króna og innlánsstofnanir  45 milljarða króna. Heildarniðurfærslan  jafngildir 37% af áætluðum útgjöldum ríkissjóðs í ár.

Að mínu mati er fengur af þessari greinargerð Hagfræðistofnunar og mikilvægt að fá hér mat óháðra fræðimanna á stöðunni og ýmsum  kostum sem hafa  verið í umræðunni. Nú geta menn vonandi rætt framhaldið á þeim grunni. Menn geta haft mismunandi skoðanir á þeim leiðum sem koma til greina, en það verður að gera þá kröfu að allar slíkar hugmyndir séu byggðar á réttum og raunverulegum forsendum. Upphrópanir og yfirboð  þar sem engar forsendur eða von er um efndir gera ekkert annað en að skaða umræðuna og afvegaleiða fólk, skapa væntingar sem ekki er hægt að standa við.

Ýmsar tillögur hafa komið fram um afskriftir skulda í þessa veru . Því miður er það svo að allar tillögur um flatar niðurfærslur, færa ekki skuldir niður heldur færa þær til.

 Það þarf svo sem ekki að koma á óvart, enda gufa skuldir ekki upp. Ýmist er verið að færa skuldir yfir  á skattgreiðendur eða á börnin okkar og komandi kynslóðir. Það er skylda þeirra sem vilja fara leið flatrar niðurfærslu lána að sýna svart á hvítu hver á að borga brúsann.  Það er óboðlegt að svara til: við prentum bara peninga.  

Engu skiptir í þessu máli að búa til peningahringekjur  í hátt við útrásarvíkinga, svo sem með því  að fela rýrnun eiginfjár Seðlabanka í  eignarhaldsfélagi. Sama hversu margar hringferðir um hagkerfið við sendum peningana þá þarf einhver að borga og á endanum eru það yfirleitt skattgreiðendur.  

Frú forseti
Við stöndum frammi fyrir erfiðu siðferðislegu og pólitísku úrlausnarefni. Hvert er réttlætið í þessum efnum? Sannarlega hafa heimili með há húsnæðislán orðið fyrir umtalsverðum búsifjum vegna hrunsins og óstöðugleika krónunnar og það er ólíðandi að stór hópur fólks festist í vítahring vonleysis vegna þessa. Við þessu höfum við og erum  að bregðast.  En hver getur réttlætt að skerða lífeyri verkafólks sem jafnvel aldrei hefur eignast þak yfir höfuðið til að afskrifa íbúðalán fullvinnandi fólks, þar á meðal stóreignafólks?  

Stefnan sem við höfum fylgt hefur byggst á sértækum aðgerðum er varðar skuldalækkun en almennum aðgerðum til að létta greiðslubyrði með  vaxtabótum sem nema um 60 milljörðum frá hruni. Jafnframt hefur stefnan grundvallast á varkárni er varðar aukin ríkisútgjöld og útgjöld lífeyrissjóða.

Tölur Seðlabankans tala sínu máli. Skuldir heimilanna  hafa lækkað verulega  og er nú víðlíka í hlutfalli af landsframleiðslu – eða 107 prósent – og í lok árs 2007, á hátindi bóluhagkerfisins. Við þetta má bæta að  nýgenginn dómur Hæstaréttar mun hafa í för með sér enn meiri niðurfærslur lána þótt erfitt sé að ráða hvert umfang þeirra verður á þessari stundu.

Hvergi í heiminum eru dæmi af hlutfallslega jafn miklum afskriftum skulda og hér á landi. Með leyfi forseta langar mig að vitna til Lars Christensen, danska hagfræðingsins sem varaði á sínum tíma við hruninu.  Í Bloomberg fréttaveitunni segir þessi ágæti hagfræðingur  „Það má örugglega halda því fram að Ísland sé heimsmeistari í að færa niður skuldir heimilanna.“  Svo mörg voru þau orð.

Sem vænta mátti stórjukust vanskil einstaklinga við fjármálastofnanir í  kjölfar hrunsins. Staðreyndin er sú að verulega hefur dregið úr vanskilum. Tölur Fjármálaeftirlitsins sýna að um mitt ár 2010 voru 34 prósent  með einhver lán í verulegum vanskilum við bankanna. Nú í febrúar er samsvarandi hlutfall komið úr þessum 34 prósentum niður í 20 prósent samkvæmt upplýsingum FME.

Nýjar tölur um gjaldþrot einstaklinga benda í sömu átt og sýna að við höfum náð að  milda höggið af skelfilegum afleiðingum hrunsins á heimilin.  Ef horf er til síðustu 10 ára voru gjaldþrot einstaklinga þannig 50 prósentum fleiri að meðaltali en að meðaltali undanfarin  þrjú ár, eða 221 á móti 146.

Því fer hins vegar fjarri að ég eða ríkisstjórnin líti svo á að við séum komin á endapunkt í þessum efnum og skuldamál heimilanna verða áfram eitt af stóru málunum á borðum stjórnvalda. Á vettvangi stjórnvalda er nú unnið að úrvinnslu mála í kjölfar nýgengins dóms Hæstaréttar um gengisbundin lán og er mikilvægt að tryggja sem best skjóta úrlausn þeirra mála með hagsmuni lánþega og samfélagsins í  heild  að leiðarljósi. Sérstök  ráðherranefnd vinnur  meðal annars  að mótun úrræða vegna þess hóps sem fór á mis við 110 prósenta leiðina að hluta vegna lánsveða og skoðun mögulegra leiða til að koma til móts við þá  sem keyptu  sína fyrstu eign í aðdraganda hrunsins þegar fasteignaverð var í hæstu hæðum. Þetta eru viðfangsefnin;  að skoða stöðu þeirra sem vegna lánsveða gátu ekki nýtt sér 110 prósenta leiðina og síðan að skoða hvort frekar sé hægt að koma til móts við þá sem voru í lang erfiðastri stöðu eftir hrunið,  það er að segja þeir sem keyptu sína fyrstu eign á þessum árum fyrir hrunið þegar fasteignaverðið var í hæstu hæðum.

Þá er einnig verið að skoða  hvernig unnt er að stíga enn frekari skref í að minnka umfang verðtryggðra lána í fasteignaviðskiptum bæði á vettvangi þings og ríkisstjórnar eins og fram hefur komið. Vænti ég þess að breið samstaða náist í þinginu um niðurstöðu þess máls sem verið er að vinna að í nefnd þingsins.

Ég vil í lokin segja  að ef raunhæfar og réttlátar aðgerðir til að létta skuldir heimila standa til boða sem ekki íþyngja skattgreiðendum, skerða ekki kjör lífeyrisþega í nútíð og framtíð og hamla ekki hagvexti í bráð og lengd hljótum við að skoða þær af mikilli alvöru.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta