Hoppa yfir valmynd
25. apríl 2012 ForsætisráðuneytiðJóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra 2009-2013

Í kjölfar dóms Landsdóms

Í kjölfar dóms Landsdóms hefur spunnist mikil umræða um störf ríkisstjórna og stjórnsýslu og jafnvel verið látið í veðri vaka að ekkert hafi verið gert til þess að bæta þau vinnubrögð sem dómurinn gagnrýnir. Ríkisstjórnir mínar hafa lagt sérstaka áherslu á umbætur í stjórnsýslu á kjörtímabilinu, ekki síst varðandi vinnubrögð ríkisstjórna og á ráðherrafundum auk fækkunar og styrkingar ráðuneyta.

Ráðherranefnd um efnahagsmál

Þegar árið 2009 voru settar á fót ráðherranefndir m.a. um efnahagsmál. Þessar nefndir starfa samkvæmt formföstu skipulagi og á föstum fundum á sama hátt og ríkisstjórnin. Í ráðherranefnd um efnahagsmál, sem heldur fundi a.m.k. vikulega, eru lögð fram skrifleg gögn um ástand á fjármálamörkuðum o.fl. sem varðar efnahagslífið auk stærstu mála nefndar um fjármálastöðugleika og áhættuþættir í efnahagslífi vaktaðir og metnir. Þá eru reglulega kallaðir til funda við nefndina forsvarsmenn Seðlabankans, Fjármálaeftirlitsins og fleiri aðila sem gegna mikilvægu hlutverki á þessu sviði.

Forsætisráðherra, efnahags- og viðskiptaráðherra og fjármálaráðherra sitja alla fundina og fá til sín aðra ráðherra ef tilefni er til. Nefndin er því verkstjórnar- og samhæfingarvettvangur og þar eru mál sem varða efnahagsmál í víðum skilningi rædd og þeim komið í farveg. Stærstu málin sem rædd eru í nefndinni eru jafnframt tekin upp í ríkisstjórn og allir ráðherrar fá fundargerðir allra ráðherranefndafunda sendar og geta tekið upp í ríkisstjórn öll mál sem þar hafa verið rædd.

Ný lög um Stjórnarráð Íslands

Í nýjum lögum um Stjórnarráð Íslands er nú skýrt kveðið á um að mikilvæg stjórnarmálefni skuli rædd á ríkisstjórnarfundum. Árið 2009 skipaði ég nefnd um endurskoðun laga um Stjórnarráð Íslands sem lagði til breytingar á starfsháttum og skilaði skýrslunni Samhent stjórnsýsla þar sem er finna ýmsar ábendingar um það sem betur mætti fara í starfsemi Stjórnarráðsins.

Á meðan nefndin starfaði skiluðu rannsóknarnefnd Alþingis og þingmannanefndin, sem fór yfir skýrslu rannsóknarnefndarinnar, skýrslum sínum auk þess sem starfshópur forsætisráðherra um viðbrögð Stjórnsýslunnar við skýrslu RNA skilaði sinni skýrslu. Á grunni þessara skýrslna var unnið frumvarp til laga um Stjórnarráð Íslands sem nú er orðið að lögum þar sem sérstaklega er fjallað um ríkisstjórn og samhæfingu starfa milli ráðherra.

Skýrt er hvað átt er við með mikilvægum stjórnarmálefnum sem ræða skal í ríkisstjórn. Þá er m.a. kveðið á um þá skyldu ráðherra að samhæfa stefnu og aðgerðir ráðuneyta og hlutverk forsætisráðherra í því efni. Starfsreglur ríkisstjórnar og ráðherranefnda hafa í kjölfarið verið endurskoðaðar auk reglna um skráningu formlegra samskipta við aðila innan og utan Stjórnarráðs Íslands.

Formfesta í vinnubrögðum

Forsætisráðuneytið mun að sjálfsögðu fara ítarlega yfir dóm Landsdóms ásamt öllum ráðuneytum innan Stjórnarráðs Íslands og skoða hvort tilefni sé til fleiri breytinga til þess að tryggja enn frekar formfestu og reglufestu í vinnubrögðum. Þá hafa verið gerðar breytingar á starfsemi forsætisráðuneytisins til þess að gera því betur kleift að sinna forystuhlutverki sínu en í dómi Landsdóms er m.a. fjallað um forystuhlutverk forsætisráðuneytisins sem leiða má af 17. gr. stjórnarskrárinnar. Ekki var hefð fyrir formlegum ráðherranefndum né markvissri eftirfylgni með stjórnarsáttmálum ríkisstjórna utan ríkisstjórnarfunda. Þessu hefur verið breytt og ráðuneyti sameinuð og efld.

Ríkisstjórnir mínar hafa lagt áherslu á að efla stjórnsýsluna og styrkja í takt við þær ábendingar sem fram hafa komið, ekki síst í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Eins og ég hef bent á í þessari grein hefur ýmislegt þegar verið gert og áfram verður haldið á sömu braut. Efling og styrking stjórnsýslunnar er stöðugt viðfangsefni og við erum mjög langt komin í því að innleiða breytingar í samræmi við ábendingar Rannsóknarnefndar Alþingis og þingmannanefndarinnar.

Ég vil nota þetta tækifæri til þess að þakka frábæru starfsfólki Stjórnarráðsins fyrir framlag sitt í þeim efnum.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta