Um stöðu Íslands á norðurslóðum
Titill á ræðu Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra var „Island in a Sea of Change - How the Arctic is developing and Iceland managing“. Sagði forsætisráðherra meðal annars stöðu Íslands á norðurslóðum sterka og ræddi mikilvægi þess að þróunin á norðurslóðum verði sjálfbær og íbúum norðurskautsins til hagsbóta.
Í framhaldi af ræðunni tók forsætisráðherra þátt í umræðum við áhorfendur úr sal og stjórnanda umræðunnar, Stephen Sackur, þáttastjórnanda á BBC sjónvarpsstöðinni.