Hoppa yfir valmynd
15. desember 2022 ForsætisráðuneytiðKatrín Jakobsdóttir

Sækjum fram á óvissutímum - Grein Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra á Vísi 13. desember 2022

Kjarasamningar fyrir stærstan hluta launafólks á almennum vinnumarkaði hafa nú verið undirritaðir eftir að Starfsgreinasamband Íslands reið á vaðið í byrjun mánaðarins og verslunarmenn og samflot iðn- og tæknifólks fylgdi svo í kjölfarið gær. Þetta er mikilvægur áfangi fyrir fólkið í landinu, ekki síst á óvissutímum.

Ríkisstjórnin hefur á undanförnum vikum og mánuðum átt í nánu samtali við aðila vinnumarkaðarins um aðgerðir til að greiða fyrir samningunum sem munu styðja við markmið þeirra um að verja kaupmátt og lífskjör launafólks og skapa forsendur fyrir stöðugleika í efnahagsmálum með lækkun verðbólgu og vaxta. Afrakstur þess samtals birtist í gær þegar ríkisstjórnin kynnti stuðningsaðgerðir sínar. Aðgerðirnar eru margháttaðar og miða einkum að því að styðja við lífskjör lág- og millitekjufólks með markvissum umbótum í húsnæðismálum og auknum stuðningi við barnafjölskyldur.

Fleiri íbúðir byggðar – félagslegar lausnir

Í húsnæðismálum munum við fjölga nýjum íbúðum í samstarfi við sveitarfélögin og halda áfram uppbyggingu í almenna íbúðakerfinu með auknum stofnframlögum frá ríkinu sem verða 4 milljarðar króna á næsta ári. Sú uppbygging bætist við þær 3.000 íbúðir sem byggðar hafa verið upp í almenna íbúðakerfinu á undanförnum árum, m.a. í góðu samstarfi við verkalýðshreyfinguna í gegnum Bjarg íbúðafélag sem reynst hefur afar mikilvægt til að lækka húsnæðiskostnað og auka húsnæðisöryggi tekjulægri heimila. Við munum vinna áfram að því að bæta réttarstöðu leigjenda með breytingum á húsaleigulögum og munu fulltrúar vinnumarkaðarins taka þátt í þeirri vinnu með okkur.

Hærri húsnæðis- og vaxtabætur

Við höfum einnig átt samstarf um endurskoðun á húsnæðisstuðningskerfunum að undanförnu. Afrakstur þess er meðal annars að húsnæðisstuðningur verður aukinn með 13,8% hækkun húsnæðisbóta til leigjenda um áramót sem kemur til viðbótar 10% hækkun sem kom til framkvæmda þann 1. júní síðastliðinn. Þetta þýðir sem dæmi að húsnæðisbætur geta hækkað á bilinu 60-100 þúsund krónur á ári eftir fjölskyldustærð. Þá munu eignaskerðingamörk í vaxtabótakerfinu hækka um 50% sem mun styðja betur við eignarminni heimili og sem dæmi getur breytingin skilað einstæðu foreldri með 400 þúsund króna mánaðarlaun hærri vaxtabótum á næsta ári sem nemur 300 þúsund krónum. Auk þessa verður heimild til skattfrjálsrar nýtingar á séreignarsparnaði til kaupa á íbúðarhúsnæði til eigin nota eða ráðstöfunar inn á höfuðstól framlengd til ársloka 2024 sem léttir á byrði húsnæðiskaupenda.

Hærri barnabætur og fleiri fjölskyldur njóta

Stuðningur við barnafjölskyldur verður efldur og fjölskyldum sem fá barnabætur mun fjölga um nærri þrjú þúsund. Þannig mun heildarfjárhæð sem varið verður til barnabóta á næstu tveimur árum verða 5 milljörðum hærri en að óbreyttu kerfi. Við einföldum barnabótakerfið, drögum úr skerðingum og tökum upp samtímagreiðslur þannig að biðtími eftir barnabótum verði aldrei lengri en 4 mánuðir eftir fæðingu barns. Þetta mun skipta fjölskyldur á viðkvæmu tímabili í lífinu miklu máli þar sem bið eftir greiðslu barnabóta getur nú verið allt að 13 mánuðir. Þessar breytingar þýða sem dæmi að sambúðarfólk með 400 þúsund krónur hvort í mánaðarlaun og tvö börn mun fá tæplega 110 þúsund krónum meira á ári í barnabætur eftir breytingarnar.

Verkefnin framundan

Við munum á samningstímanum í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins vinna að ýmsum mikilvægum málum sem varða m.a. mikilvæg réttindi launafólks eins og hámarksgreiðslur frá fæðingarorlofssjóði og ábyrgðasjóði launa og heildarendurskoðun á atvinnuleysisbótakerfinu. Þá munu stjórnvöld veita stuðning til að auka aðhald á neytendamarkaði með því að bæta aðgengi almennings að upplýsingum um þróun verðlags og skapa þannig hvata fyrir fyrirtæki til að halda aftur af verðhækkunum sem er mikilvægur liður í að kveða niður verðbólguna. Þeir samningar sem nú hafa verið undirritaðir eru til skamms tíma en eru mikilvægur vegvísir yfir í nýja langtímasamninga og gera okkur kleift að sækja fram á óvissutímum.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta