Ávarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í kjölfar eldgoss við Grindavík 14. janúar 2024
Þjóðin stendur nú andspænis hrikalegum náttúruöflum. Eldgos hófst í morgun og hraun streymir nú yfir byggðina í Grindavík. Versta sviðsmynd hefur raungerst, eldgos á Sundhnúksgígasprungunni á versta stað og hluti gossins innan bæjarmarkanna þannig að varnargarðarnir duga ekki til. Eldarnir eira engu, eyðileggingin er gífurleg.
Allt frá 10. nóvember hafa Grindvíkingar búið við yfirþyrmandi óvissu en þá var bærinn rýmdur. Öll vonuðum við að ástandið sem hófst með skelfilegum jarðskjálftum myndi verða skammvinnt og fólk gæti fljótlega snúið aftur til síns heima. Mér er minnisstæður faðirinn sem sagði mér í nóvember að dóttir hans hefði haft mestar áhyggjur af því að jólagjafirnar hefðu orðið eftir heima. Þá vonuðum við öll að Grindvíkingar gætu snúið heim fyrir jól. Því miður fór það ekki svo. Eldgos hófst 18. desember en sem betur fer olli það ekki miklum skaða. Annað gildir um eldgosið sem hófst í dag.
Þetta ástand hefur nú varað í ríflega tvo mánuði, 65 daga, en óróatímabilið á Reykjanesskaga hefur varað í meira en fjögur ár. Grindvíkingar hafa sýnt æðruleysi og seiglu frammi fyrir óvissunni en í dag þyrmir yfir okkur öll. Hugur allra landsmanna er hjá Grindvíkingum.
Viðbragðsaðilar eru allir sem einn á vettvangi og hafa verið á vaktinni allt frá því að jarðskjálftahrinan ógurlega hófst í haust. Ljóst var að við töldum rétt að rýma byggðina vegna sprunguhreyfinga eftir hið skelfilega slys sem varð í vikunni. Þess manns er enn saknað og hugur minn er hjá aðstandendum hans.
Öryggi íbúa og viðbragðsaðila hefur frá upphafi verið algjört forgangsmál og það verður áfram svo. Eðlilega hafa margir Grindvíkingar verið óþreyjufullir að snúa heim og undir niðri var alltaf vonin um að jarðeldarnir myndu hlífa byggðinni. Áfallið að sjá nýja sprungu opnast um hádegisbil innan bæjarmarkanna var því djúpstætt.
Við vitum öll innra með okkur hversu verðmætt það er að eiga heima – að eiga heima merkir að eiga öruggan stað, griðastað, stað fyrir sig og sína. Heima er staðurinn þar sem við höfum byggt upp líf okkar, heima er þar sem við eigum minningar og sögu, heima er staðurinn þar sem við eigum rætur. Heimkynni Grindvíkinga eru sem stendur í hættu af hraunflæði sem engu eirir. Enginn getur skilið slíkt áfall sem ekki hefur orðið fyrir því en við skynjum öll hversu hrikalegt það er fyrir alla Grindvíkinga.
Þetta áfall er eitthvað sem hver og einn Grindvíkingur upplifir – bæði einn og sér og sameiginlega með öðrum bæjarbúum. En þjóðin stendur með ykkur og mun gera það áfram. Sem þjóð og sem samfélag, munum við nú sem áður styðja við Grindvíkinga og gera það sem þarf til að koma þessu einstaka samfélagi í gegnum þennan brimskafl. Ég vil sérstaklega nefna að við munum tryggja að Grindvíkingar hafi aðgang að sálrænum stuðningi og fagþjónustu í gegnum þessa reynslu.
Allt frá 10. nóvember höfum við tekið þetta skref fyrir skref. Saman hafa Grindvíkingar mætt þeim áskorunum sem hver dagur hefur fært þeim. Það hefur verið full samstaða á Alþingi um allar stuðningsaðgerðir vegna stöðunnar í Grindavík og á morgun mun ríkisstjórnin funda og ákveða áframhald stuðningsaðgerða vegna húsnæðis, stuðningsaðgerða vegna afkomu fólks sem við munum áfram tryggja. Við munum setja stóraukinn kraft í að kaupa íbúðir til að tryggja aðgengi að húsnæði fyrir Grindvíkinga, sem er ekki nægjanlega gott nú, og munum ljúka við að kynna stuðning við fyrirtækin á svæðinu. Markmiðið er að koma öllum sem enn búa í skammtímahúsnæði í öruggari stöðu eins fljótt og kostur er. Við munum flýta eins og kostur er allri vinnu við uppgjör á tjóni í samvinnu við sveitarfélagið.
Áfram munum við fylgja ráðum okkar færustu sérfræðinga sem öll miða að því að tryggja öryggi fólks á erfiðum tímum. Ég vil nota tækifærið hér og þakka okkar vísindafólki og öllum viðbragðsaðilum sem hafa verið vakin og sofin yfir þessu erfiða verkefni. Það er mikil gæfa fyrir íslenskt samfélag að eiga fólk eins og ykkur.
Við erum ekki óvön því að upplifa sorg og vanmátt gagnvart eyðileggingarmætti náttúrunnar en það venst samt aldrei. En á krefjandi stundum koma bestu hliðar íslensks samfélags iðulega í ljós. Hamfarir dynja yfir en andspænis þeim sýnum við samheldni samfélagsins og seiglu. Við vitum ekki nákvæmlega hvað framtíðin færir okkur en við vitum að samstaða, æðruleysi og kærleikur munu verða okkar mikilvægasta leiðarljós fram undan.
Það er svartur dagur í dag fyrir Grindavík. Og það er svartur dagur í dag fyrir Ísland. En sólin mun koma upp á nýjan leik. Saman tökumst við á við þetta áfall og hvað sem verða kann. Hugur okkar og bænir eru hjá ykkur.