Hoppa yfir valmynd
04. nóvember 2024 DómsmálaráðuneytiðGuðrún Hafsteinsd

Mannúðlegri úrræði - Grein á visir.is

Ísland stendur frammi fyrir vaxandi áskorunum þegar kemur að móttöku og meðferð hælisleitenda, einkum þeirra sem hafa fengið synjun á umsókn sinni og ber því að yfirgefa landið í samræmi við lög og alþjóðlegar skuldbindingar okkar. Þrátt fyrir árangur í málaflokknum er ljóst að okkur skortir enn brottfararúrræði sem tryggir heildstæða og skilvirka stjórn í útlendingamálum.

Ísland er í dag eina ríkið innan Schengen samstarfsins sem ekki hefur komið á fót brottfararúrræði fyrir þessa einstaklinga. Við þetta hafa verið gerðar ítrekaðar athugasemdir enda skapast réttarfarslegt tómarúm þar sem við getum ekki tryggt brottvísun þeirra sem dvelja á Íslandi í ólögmætri dvöl eftir að hafa fengið synjun. Um er að ræða einstaklinga sem ber að fara af landi brott og hafa hafnað allri samvinnu við stjórnvöld í þá veru. Afleiðingarnar af þessu ástandi eru margar og alvarlegar, en óljóst lagalegt ástand getur til dæmis ýtt undir félagslega einangrun og óvissu. Óvissu fyrir bæði viðkomandi einstaklinga en einnig fyrir íslenskt samfélag.

Samkvæmt Schengen regluverkinu ber okkur ekki aðeins skylda til að veita umsækjendum um alþjóðlega vernd sanngjarna og réttláta málsmeðferð, heldur einnig að framfylgja réttmætum ákvörðunum stjórnvalda. Ef Ísland getur ekki uppfyllt þessa skyldu grefur það undan trúverðugleika okkar innan samstarfsins.
Mannúð er lykilatriði þegar hugað er að breytingum í málefnum útlendinga. Brottfararúrræði þurfa ekki að vera grimm eða harðneskjuleg, heldur hluti af réttlátri og ábyrgri útlendingalöggjöf.

Núverandi staða er óásættanleg

Í dag eru um 220 einstaklingar í ólögmætri dvöl á Íslandi og bíða heimfarar. Inni í þeirri tölu eru ekki þeir einstaklingar sem hafa látið sig hverfa. Stór hluti af þessum 220 einstaklingum hefur þegar fengið synjun um alþjóðlega vernd. Undir lok september höfðu um 1500 umsóknir borist um alþjóðlega vernd á árinu og Útlendingastofnun synjað sambærilegum fjölda um alþjóðlega vernd. Það höfðu 1165 einstaklingar yfirgefið landið, þar af 205 í þvingaðri brottför.

Staðreyndin er sú, að það sem af er ári hafa rúmlega 40 manns sem ber að yfirgefa landið verið vistaðir í gæsluvarðhaldi á grundvelli útlendingalaga. Þetta er gert af þeirri einu ástæðu að hér á landi er ekkert brottfararúrræði. Í sumum tilfellum hefur fjölskyldum verið tvístrað, foreldrar settir í gæsluvarðhald og börnin í fóstur áður en að brottför kemur. Þetta er óásættanlegt.

Það er óásættanlegt og hreinlega andstætt okkar skuldbindingum að einstaklingar sem eru hér í ólögmætri dvöl, en hafa ekki framið annan glæp, séu vistaðir í gæsluvarðhaldi í mesta öryggisfangelsi landsins ásamt föngum sem afplána refsivist. Það er ekki einungis rangt heldur ómannúðlegt.

En þetta er samt ástand sem sumir stjórnmálaflokkar, sem á tyllidögum kenna sig við mannúð og segjast „ekki styðja varðhaldsbúðir fyrir hælisleitendur“, vilja frekar viðhalda en að koma upp mannúðlegum brottfararúrræðum eins og öll nágrannalönd okkar hafa.

Í spjallþætti á dögunum sagði nýkjörinn formaður stjórnmálaafls um brottfararúrræði að hún væri andsnúin „þessu áhugamáli“ Sjálfstæðisflokksins. Já, Sjálfstæðisflokkurinn hefur um árabil haft það áhugamál að tala fyrir ábyrgri stefnu í útlendingamálum. Það er áhugamál okkar að gera áframhaldandi umbætur í málaflokknum, tryggja skilvirka málsmeðferð og ná niður kostnaði. Það er áhugamál okkar að standa við alþjóðlegar skuldbindingar okkar og gæta mannúðar. Ekki bara á tyllidögum heldur í hvívetna.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta