Hoppa yfir valmynd

1992 - Stóð ég við Öxará

Stóð eg við Öxará

hvar ymur foss í gjá;

góðhesti úngum á

Arason reið þar hjá,

hjálmfagurt herðum frá

höfuð eg uppreist sá;

hér gerði hann stuttan stans,

stefndi til Norðurlands.

 

Úr lundi heyrði eg hvar

hulduljóð súngið var;

fanst mér ég þekti þar

þann sem sló kordurnar:

alheill og orðinn nýr

álfurinn hörpu knýr,

ástvinur eingum jafn

alfari úr Kaupinhafn.

 

Stóð eg við Öxará

árroða á fjöllin brá,

kátt tók að klíngja og fast

klukkan sem áður brast,

alskærum ómi sló

útyfir vatn og skóg.

Mín klukka, klukkan þín,

kallar oss heim til sín.

 

 

Skáld: Halldór Laxness

Fjallkona: Halldóra Rósa Björnsdóttir

Til baka

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum