Hoppa yfir valmynd

1975 - Úr Íslendingadags ræðu

Þó þú langförull legðir

sérhvert land undir fót

bera hugur og hjarta

samt þíns heimalands mót,

frænka eldfjalls og íshafs!

sifji árfoss og hvers!

dóttir langholts og lyngmós!

sonur landvers og skers!

 

Yfir heim eða himin,

hvort sem hugar þín önd,

skreyta fossar og fjallshlíð

öll þín framtíðar lönd!

Fjarst í eilífðar útsæ

vakir eylendan þín:

nóttlaus vor-aldar veröld,

þar sem víðsýnið skín.

 

Það er óskaland íslenskt,

sem að yfir þú býr –

aðeins blómgróin björgin,

sérhver baldjökull hlýr,

frænka eldfjalls og íshafs!

sifji árfoss og hvers!

dóttir langholts og lyngmós!

sonur landvers og skers!

 

 

Skáld: Stephan G. Stephansson

Fjallkona: Anna Kristín Arngrímsdóttir

Til baka

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta