Hoppa yfir valmynd

1987 - Minningarljóð á hundrað ára afmæli Jóns Sigurðssonar 17. júní 1911

Þagnið, dægurþras og rígur!

Þokið meðan til vor flýgur

örninn mær, sem aldrei hnígur

íslenskt meðan lifir blóð:

minning kappans, mest sem vakti

manndáð lýðs og sundrung hrakti,

fornar slóðir frelsis rakti,

fann og ruddi brautir þjóð.

Fagna, Ísland, fremstum hlyni

frama þíns, á nýrri öld,

magna Jóni Sigurðssyni

sigurfull og þakkargjöld!

 

Lengi hafði landið sofið,

lamað, heillum svift og dofið –

fornt var vígið frelsis rofið,

farið kapp og horfin dáð.

Loks hófst reisn um álfu alla,

árdagsvættir heyrðust kalla –

þjóð vor rumska þorði varla,

því að enginn kunni ráð –

þar til hann kom, fríður, frækinn,

fornri borinn Arnar slóð,

bratta vanur, brekkusækinn.

Brjóst hann gerðist fyrir þjóð.

 

Vopnum öflugs anda búinn,

öllu röngu móti snúinn,

hreinni ást til ættlands knúinn,

aldrei hugði’ á sjálfs síns gagn.

Fætur djúpt í fortíð stóðu,

fast í samtíð herðar óðu,

fránar sjónir framtíð glóðu.

Fyllti viljann snilldar magn.

Hulinn kraft úr læðing leysti,

lífgaði von og trú á rétt.

Frelsisvirkin fornu reisti,

framtíð þjóðar mark lét sett.

 

Áfram bauð hann: „Ekki víkja.“

Aldrei vildi heitorð svíkja.

Vissi: Hóf æ verður ríkja

vilji menn ei undanhald.

Víðsýnn, framsýnn, fastur, gætinn,

fjáði jafnan öfgalætin,

kostavandur, sigri sætinn

sótti réttinn, skildi vald.

Jafnt í byr og barning gáður

báts og liðs hann gætti þols.

Engum dægurdómum háður. –

Dýrra naut hann sjónarhvols.

 

Lífsstríð hans varð landsins saga.

Langar nætur, stranga daga

leitaði’ að hjálp við hverjum baga

hjartkærs lands, með öruggt magn.

Alt hið stærsta, alt hið smæsta,

alt hið fjærsta og hendi næsta,

alt var honum eins: hið kærsta,

ef hann fann þar lands síns gagn.

Ægishjálm og hjartans mildi

hafði jafnt, er stýrði lýð,

magn í sverði, mátt í skildi

málsnilld studdi hvöss og þýð.

 

Arnarfjörður, fagra sveitin!

fjöllum girt, sem átt þann reitinn

þar, sem nafni hann var heitinn,

hetjan prúð, sem landið ann,

heill sé þér og þínum fjöllum,

þar sem sveinninn, fremri öllum,

lærði að klífa, hjalla af hjöllum,

hátt, uns landi frelsi vann!

Eyrin Rafns! Það ljós sem lýsti

löngu síðan við þinn garð,

enga helspá í sér hýsti:

Íslands reisnar tákn það varð.

 

Ísland, þakka óskasyni,

endurreisnar fremstum hlyni,

þakka Jóni Sigurðssyni,

sem þér lyfti mest og best.

Sjást mun eftir aldir næstu

enn þá ljós af starfi glæstu.

Nær sem marki nær þú hæstu,

nafn hans ljómar æðst og mest.

Gleðji drottinn frömuð frelsis,

fósturjarðar sverð og skjöld!

Lagabætir, brjótur helsis,

blessist starf þitt öld af öld!

 

 

Skáld: Hannes Hafstein

Fjallkona: Guðný Ragnarsdóttir

Til baka

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta