Hoppa yfir valmynd

2018 - Ávarp fjallkonunnar

í stað þess

að stilla okkur upp

á stallinum

 

köllum við saman

allar fjallkonur landsins

 

hó!

nú streymum við misvænar

niður á völlinn

 

margar

með þunga snjóköggla á kviðnum

 

þær fremstu

með klakakrónuna

eins og erfðasynd á höfðinu

 

og brælan úr brennunni

stendur eins og strókur upp úr hvirflinum

 

hráblautur strigapokinn

er tekinn saman

með stolnu snæri í mittið

 

 

og óvígður moldarslóðinn

hringast eins og naðra um fæturna

 

þær næstu

með hattkúf á höfði

 

krullur í hári

og eldrauðan varalit

 

í drappaðri dragt

eða aðskornum kjól úr gardínuefni

 

og berir leggirnir litaðir

með skóáburði frá hnéskel og niður úr

 

síðastar

koma druslurnar

 

stífmálaðar

í of flegnum blússum

 

of þröngum

og of stuttum pilsum

 

 

á of háum hælum

og of fullar í ofanálag

 

og þegar við höfum helgað okkur

hverja torfu á vellinum

stígum við fram

 

allar fjallkonur landsins

fullvalda og sjálfstæðar

 

 

Skáld: Linda Vilhjálmsdóttir

Fjallkona: Sigrún Edda Björnsdóttir

Til baka

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum