Hoppa yfir valmynd

2008 - Ávarp fjallkonunnar

Landslag! það hljómar

í sal undir himninum, sungið

af dætrum mínum, þeim tjörn og tó

fit, mýri og mörk:

 

leiðarstef

til þín, gegnum þokur tímans!

 

Þú vissir ei

hver þú varst í raun, fyrr en þar;

þú sættist hvergi

við sjálfan þig betur en þar;

 

þú villtist hvergi

jafn voðalega,

jafn þakksamlega sem þar!

Svo kliðmjúk, höfug

er kveðandin sú að heyra.

 

 

Skáld: Þorsteinn frá Hamri

Fjallkona: Elma Lísa Gunnarsdóttir

Til baka

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum