Hoppa yfir valmynd

1968 - Ísland

Ísland! Farsældafrón og hagsælda hrímhvíta móðir!

Hvar er þín fornaldarfrægð, frelsið og manndáðin best?

Allt er í heiminum hverfult og stund þíns fegursta frama

lýsir sem leiftur um nótt langt fram á horfinni öld.

Landið var fagurt og frítt og fannhvítir jöklanna tindar,

himinninn heiður og blár, hafið var skínandi bjart.

Þá komu feðurnir frægu og frjálsræðishetjurnar góðu

austan um hyldýpishaf, hingað í sælunnar reit.

Reistu sér byggðir og bú í blómguðu dalanna skauti;

ukust að íþrótt og frægð, undu svo glaðir við sitt.

Hátt á eldhrauni upp, þar sem ennþá Öxará rennur

ofan í Almannagjá, alþingið feðranna stóð.

Þar stóð hann Þorgeir á þingi er við trúnni var tekið af lýði.

Þar komu Gissur og Geir, Gunnar og Héðinn og Njáll.

Þá riðu hetjur um héruð og skrautbúin skip fyrir landi

flutu með fríðasta lið, færandi varninginn heim.

Það er svo bágt að standa’ í stað, og mönnunum munar

annaðhvort aftur á bak ellegar nokkuð á leið.

Hvað er þá orðið okkar starf í sex hundruð sumur?

Höfum við gengið til góðs götuna fram eftir veg?

Landið er fagurt og frítt og fannhvítir jöklanna tindar,

himinninn heiður og blár, hafið er skínandi bjart.

En á eldhrauni upp, þar sem ennþá Öxará rennur

ofan í Almannagjá, alþing er horfið á braut.

Nú er hún Snorrabúð stekkur og lyngið á lögbergi helga

blánar af berjum hvert ár, börnum og hröfnum að leik.

Ó, þér unglingafjöld og Íslands fullorðnu synir!

Svona er feðranna frægð fallin í gleymsku og dá!

 

 

Skáld: Jónas Hallgrímsson

Fjallkona: Brynja Benediktsdóttir

Til baka

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum