Skipulag
Skipurit forsætisráðuneytisins
Æðsti yfirmaður forsætisráðuneytis er forsætisráðherra. Æðsti embættismaður ráðuneytisins er ráðuneytisstjóri, sem stýrir daglegum rekstri þess. Starfsmenn eru um fjörutíu talsins.
Fjallað er um verkefnasvið forsætisráðuneytis í forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta (31.1.2022).
Uppfært í september 2024
Forsætisráðuneytið skiptist í þrjár skrifstofur og er málefnasvið þeirra eftirfarandi:
Skrifstofa stjórnskipunar
- Stjórnarskráin og þróun stjórnskipunarréttar
- Lög um Stjórnarráð Íslands og verkaskipting í Stjórnarráðinu
- Stjórnsýslu- og upplýsingalög
- Ráðgjafi um upplýsingarétt almennings
- Heilindi í opinberum störfum
- Samskipti við Alþingi og forseta Íslands
- Málefni ríkisstjórnar
- Málefni ríkisráðs
- Málefni ráðherranefnda
- Þjóðartákn og orður
- Alþjóðasamskipti og samhæfing á sviði Evrópusamvinnu
- Upplýsingagjöf til fjölmiðla og almennings
- Viðburðastjórnun
- Umbætur í stjórnsýslu
- Umsýsla ráðuneytisstjórahóps
- Þjónusta við ráðherra
- Ríkislögmaður
- Umboðsmaður barna
- Úrskurðarnefnd um upplýsingamál
Skrifstofa samhæfingar
- Stuðningur við stefnumótun ríkisstjórnar, ráðuneytisins og stofnana
- Eftirfylgni með stefnu ríkisstjórnar
- Samhæfing lykilverkefna sem ganga þvert á ráðuneyti
- Þjóðhagsmál og almenn hagstjórn
- Samskipti við aðila vinnumarkaðarins
- Þjóðhagsráð
- Sjálfbær þróun og réttlát umskipti
- Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna
- Áfallaþol
- Umbætur í stefnumótun og samhæfingu í Stjórnarráðinu
- Velsældarhagkerfið
- Seðlabanki Íslands
- Hagstofa Íslands
- Þjóðaröryggisráð
Skrifstofa fjármála
- Rekstur
- Fjármál
- Fjárlagagerð
- Tæknimál og starfsumhverfi
- Framkvæmd fjárlaga
- Eignamál
- Húsnæðismál
- Gæðamál
- Umbætur og þróun í innri starfsemi ráðuneytisins
- Skjalastjórnun
- Mannauðsmál
- Umbætur í rekstri Stjórnarráðsins
- Þjóðlendur
- Veitingaþjónusta
- Þjóðgarðurinn á Þingvöllum
- Hrafnseyri
- Óbyggðanefnd
Fleira um ráðuneytið
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.