Hoppa yfir valmynd

Skipulag háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti starfar samkvæmt lögum um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011, forsetaúrskurði um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti nr. 5/2022 og forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands nr. 6/2022.

Samkvæmt 17. gr. laga um Stjórnarráð Íslands, ákveður ráðherra skiptingu ráðuneytisins í skrifstofur eftir verkefnum, auk þess sem heimilt er að setja á fót sérstakar starfseiningar og ráðuneytisstofnanir sem eru starfræktar sem hluti af ráðuneytinu.

Skipulag ráðuneytisins er svohljóðandi:

  1. Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn ráðherra sem setur honum erindisbréf. Staðgengill ráðuneytisstjóra skal koma úr röðum skrifstofustjóra samkvæmt ákvörðun ráðuneytisstjóra, sbr. 16 gr. laga um Stjórnarráð Íslands.
  2. Með ráðherra starfa einn til tveir aðstoðarmenn, sbr. 22. gr. sömu laga. Ráðherra setur aðstoðarmönnum erindisbréf.
  3. Skrifstofu stýrir skrifstofustjóri sem skipaður er af ráðherra.
  4. Sérfræðingar starfa innan einstakra skrifstofa og starfseininga. Sama gildir um annað starfsfólk. Ráðuneytisstjóri setur skrifstofustjórum erindisbréf en sérfræðingar starfa samkvæmt starfslýsingum.

Ráðuneytið starfar sem ein heild og skiptist í fjórar skrifstofur: skrifstofa framkvæmda og stjórnsýslu; skrifstofa stefnumörkunar og alþjóðasamskipta; skrifstofa fjármála og innri rekstrar og skrifstofa ráðuneytisstjóra.

Ráðuneytisstjóri annast samræmingu á starfsemi skrifstofa og felur einum starfsmanna hverrar skrifstofu staðgöngu fyrir skrifstofustjóra í fjarveru þeirra. Að auki geta verið starfræktir til lengri og skemmri tíma sérstakir verkefnahópar eða -teymi til að vinna að málefnum sem varða verksvið fleiri en einnar skipulagseiningar ráðuneytisins, skv. nánari ákvörðun hverju sinni. Verkefni skiptast milli skrifstofa á eftirfarandi hátt: 

Skrifstofa framkvæmda og stjórnsýslu

Skrifstofan tryggir að stefnumótun sé framkvæmd á áhrifaríkan hátt og að stjórnsýsla ráðuneytisins sé vönduð. Hún fer með samskipti við og tryggir lögbundið eftirlit með ríkisaðilum og öðrum sem starfa að stjórnarframkvæmd á málefnasviðum ráðuneytisins. Þá ber skrifstofan ábyrgð á réttri málsmeðferð vegna kvartana og kærumála sem berast ráðuneytinu. Skrifstofan hefur umsjón með skyldum ráðherra um að annast lögbundna yfirstöðu ríkisaðila. Þá sér skrifstofan um samningagerð og er með leiðandi hlutverk í samningateymi ráðuneytisins.

Skrifstofan fer með faglega forystu og samhæfingu fyrir stofnanir og sjóði á málefnasviði þess í samráði við tengiliði. Hún skipuleggur og hefur umsjón með samskiptum við Alþingi og eftirlitsstofnanir þess í samráði við aðrar skrifstofur ráðuneytisins. Skrifstofan safnar hlutlægum upplýsingum og tölulegum gögnum til að undirbúa stefnur og áherslur ráðherra. Þá undirbýr skrifstofan skipanir og tilnefningar í nefndir og ráð sem heyra undir málefnasvið ráðuneytisins og afgreiðir bréf í nánu samráði við ráðherra og skrifstofu ráðuneytisstjóra.

Verkefnin krefjast bæði sérþekkingar og reynslu á sviði lögfræði og stjórnsýslu sem nýtist þvert á ráðuneytið í samstarfi við aðrar skrifstofur.

Skrifstofa stefnumörkunar og alþjóðasamskipta

Skrifstofan sérhæfir sig í stefnumörkun og alþjóðasamskiptum. Í því felst að hún aðstoðar ráðherra við stefnumarkandi langtímaverkefni svo sem með ýmis konar stefnum stjórnvalda, ákvörðun að fjármálaáætlun, fjárlögum, lagafrumvörpum, reglugerðum og aðgerðaáætlunum. Skrifstofan hefur samstarf og samráð við hagsaðila um mótun stefnu eftir því sem við á.

Skrifstofan fer með alþjóðasamskipti og sinnir alþjóðlegri hagsmunagæslu í málaflokkum ráðuneytisins fyrir Íslands hönd. Skrifstofan undirbýr skipanir og tilnefningar í nefndir og ráð í alþjóðlegu samstarfi.

Með sérhæfingu í stefnumörkun og alþjóðasamskiptum hefur skrifstofan þurfi til að undirbúa stefnumörkun vel svo sem með skýrri langtímasýn, ítarlegri greiningarvinnu, rannsóknum og áþreifanlegum sjónarmiðum. Mikilvægt er að á skrifstofunni séu einstaklingar sem sérhæfa sig í stefnumörkun og kunna að beita þeim tækjum og tólum sem gagnlegust eru á því sviði. 

Skrifstofa fjármála og innri rekstrar

Skrifstofan hefur yfirumsjón með gerð fjárlaga og fjármálaáætlunar og er í leiðandi hlutverki í LOF teymi ráðuneytisins (Lög um opinber fjármál). Skrifstofan annast áhrif- og kostnaðarmat lagafrumvarpa og stjórnvaldsfyrirmæla og hefur umsjón með framkvæmdar- og húsnæðismálum stofnana ráðuneytisins. Hún hefur eftirlit með framkvæmd fjárlaga og umsjón með fjárheimildum á málefnasviðum ráðuneytisins. Skrifstofan tryggir lögbundið eftirlit með fjárreiðum og uppgjöri ríkisaðila. Skrifstofan annast samskipti við Fjársýsluna og skrifstofu stjórnar og umbóta í fjármála- og efnahagsráðuneytinu er lítur að uppgjörum og afkomu. Skrifstofan fer með mannauðsmál forstöðumanna stofnana ráðuneytisins.

Skrifstofan ber ábyrgð á rekstri, áætlanagerð, fjármálum og stoðþjónustu ráðuneytisins, innkaupum á aðföngum og gerð samninga er varða rekstur ráðuneytisins. Jafnframt annast hún lögbundið eftirlit með aðilum sem fá styrki eða framlög frá ráðuneytinu. Skrifstofan ber ábyrgð á bókhaldi, áætlunum og eftirliti með fjárlagalögum og skuldaskilyrðum sem undir ráðuneytið heyra. Hún heldur utan um innra eftirlit ráðuneytisins, ber ábyrgð á skjalamálum og málaskrá ráðuneytisins og hefur umsjón með framkvæmdar- og húsnæðismálum. Skrifstofan veitir tengiliðum ríkisaðila og sérfræðingum ráðuneytisins rekstrarupplýsingar á sviðum þeirra um raunstöðu og samanburð við áætlanir og fjáreftirfylgni, þ.m.t. safnliða.

Skrifstofa ráðuneytisstjóra

Skrifstofa ráðuneytisstjóra samhæfir rekstur ráðuneytisins og þróun þess og sinnir sérstökum og tímabundnum úrlausnarefnum og áherslum sem ráðuneytið fæst við í samstarfi við aðrar skrifstofur ráðuneytisins og önnur ráðuneyti. Skrifstofan ber ábyrgð á innleiðingu og þróun nýs verklags ráðuneytisins. Að auki annast hún gæðamál, innleiðingu á ferlum og gæðahandbók. Skrifstofan ber ábyrgð á launasetningu, jafnlaunakerfi og aðbúnaði starfsfólks.

Skrifstofan hefur umsjón með upplýsingamiðlun, fjölmiðlasamskiptum og útgáfumálum. Hún fer með jafnréttismál, mannauðsmál og ráðningar, fræðslu og starfsþróun starfsfólks. Skrifstofan fer jafnframt með mál er varða alla aðstoð og þjónustu við ráðherra, svo sem varðandi dagskrá ráðherra, skipulag viðtala, heimsókna og ferðir, undirbúning funda og mál sem varða þingstörf ráðherra.

Skrifstofan vinnur náið með skrifstofum og starfseiningum ráðuneytisins að framgangi verkefna sem varða ráðuneytið í heild eða að hluta og styður við störf verkefnahópa sem settir eru á fót og starfa þvert á ráðuneytið.

Ráðuneytið allt veitir ráðherra og ráðuneytisstjóra ráðgjöf og stuðning í daglegum störfum á hlutlægum og málefnalegum grunni og við að samræma starf í ráðuneytinu, skipulag, starfshætti.

Sjá einnig:

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta