Hoppa yfir valmynd
Táknmál

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Sölvhólsgötu 4
101 Reykjavík
Sími: 545 9500
Netfang: [email protected]
Kt.: 460269-2969

Afgreiðsla ráðuneytisins er opin virka daga kl. 8.30–16.00.

Meginhlutverk mennta- og barnamálaráðuneytisins er að tryggja að menntun, aðbúnaður og réttindi barna á Íslandi séu ávallt í fyrirrúmi.

Meðal málefna sem ráðuneytið fer með eru fræðslumál barna og ungmenna, þar með talin málefni leik-, grunn og framhaldsskóla, listaskóla og lýðskóla, og málefni sem snerta þjónustu við börn og ungmenni, s.s. barnavernd og samþætting þjónustu í þeirra þágu. Mennta- og barnamálaráðuneytið fer einnig með íþrótta- og æskulýðsmál. Menntun á framhaldsskólastigi, hvort heldur bók-, verk- eða listnám, heyrir undir ráðuneytið.

Ráðherra fer með yfirstjórn ráðuneytisins og ber ábyrgð á öllum stjórnarframkvæmdum þess. Allar embættisfærslur starfsmanna eru gerðar í umboði ráðherra. Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn ráðherra.

Ráðuneytinu er skipt í fjórar skrifstofur: Skrifstofu stefnumótunar og innleiðingar, skrifstofu greininga og fjármála, skrifstofu gæða og eftirlits og skrifstofu ráðuneytisstjóra og innri þjónustu

Undirstofnanir ráðuneytisins eru Ráðgjafar- og greiningarstöð, Barna- og fjölskyldustofa, Menntamálastofnun og framhaldsskólar landsins.

Menntamálaráðuneytið var formlega stofnað 1. júní 1947 þegar ákveðið var að forsætis- og menntamálaráðuneytið skyldu framvegis starfa undir sama ráðuneytisstjóra. Þetta hélst óbreytt til 1. janúar 1970, en þá var þeim skipt í tvö ráðuneyti. Heiti ráðuneytisins var með lögum breytt í mennta- og menningarmálaráðuneyti 1. október 2009 og í mennta- og barnamálaráðuneyti 1. febrúar 2022.

Um háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Reykjastræti 6
101 Reykjavík
Netfang: [email protected]
Kt. 710122-0830

Móttaka ráðuneytisins

Afgreiðslutími er virka daga kl. 8.30–16.00.

Hlutverk háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið (HVIN) tók til starfa 1. febrúar 2022. Með því að setja á laggirnar nýtt ráðuneyti er ætlunin að leysa úr læðingi þá krafta sem myndast við samþættingu háskóla, vísinda, rannsókna, iðnaðar, upplýsingasamfélags, hugverka, fjarskipta, netöryggis og nýsköpunar. Þar með skapast grundvöllur fyrir markvissari stefnumótun og stjórnsýslu á þessum sviðum með aukinn vöxt, verðmætasköpun og velsæld að markmiði.

Ráðherra fer með yfirstjórn ráðuneytisins og ber ábyrgð á öllum stjórnarframkvæmdum þess.

Verkefni

Verkefni ráðuneytisins eru skilgreind í forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands  (31.01.2022).

Stofnanir

Þær stofnanir sem heyra undir ráðuneytið eru:

Ýmis gögn

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta