Frá ráðstefnu um niðurskurð í velferðarþjónustu
Áætluð vaxtagjöld ríkissjóðs árið 2012 gætu staðið undir tveimur þriðju af öllum kostnaði við heilbrigðiskerfið á Íslandi, eða 80% af rekstrarútgjöldum allra stofnana velferðarráðuneytisins. Guðbjartur Hannesson kynnti ýmsar stærðir í rekstri heilbrigðiskerfisins og ræddi um stefnu og aðgerðir í velferðarmálum á ráðstefnu um niðurskurð í heilbrigðisþjónustu sem haldin var í Reykjavík í dag.
Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu, Landssamband heilbrigðisstofnana og Félag forstöðumanna sjúkrahúsa stóðu að ráðstefnunni sem haldin var undir yfirskriftinni Niðurskurður í velferðarþjónustu, hvað er hægt að gera?