Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

03. júní 2020 HeilbrigðisráðuneytiðSvandís Svavarsdóttir

Netspjallið opið lengur

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra - myndHeilbrigðisráðuneytið

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar:

Einn af lykilþáttum heilbrigðisþjónustunnar í viðbrögðum okkar við COVID-19 er þjónusta Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sem fram fer í gegnum Heilsuveru. Vefsíðan Heilsuvera er samstarfsverkefni Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og embættis landlæknis.

Markmið vefsíðunnar er að koma á framfæri margvíslegri fræðslu og þekkingu um heilbrigðismál og áhrifaþætti heilbrigðis, og efla þar með heilbrigði landsmanna. Heilsuvera veitir þríþætta þjónustu. Í fyrsta lagi er það fræðsluhlutinn sem er öllum opinn. Þar er að finna fjölbreytt fræðsluefni í hinum ýmsu efnisflokkum, til dæmis fræðslu um þroska barna, svefn, næringu, hreyfingu og fleira. Í öðru lagi er að finna á Heilsuveru einstaklingsbundna þjónustu og aðgang að heilbrigðisupplýsingum á mínum síðum sem er háð rafrænni auðkenningu notenda og í þriðja lagi er netspjall heilsuveru þar sem allir sem hafa netaðgang geta átt í beinum samskiptum við hjúkrunarfræðing til að fá ýmsar upplýsingar og leiðbeiningar.

Netspjall heilsuveru hefur lengst af verið opið í fjórar til átta klukkustundir á dag en þegar fyrsti einstaklingurinn greindist með COVID-19 hér á landi ákváðu stjórnendur heilsugæslunnar að hafa netspjallið opið frá kl. 8.00 – 22.00 alla daga vikunnar. Í mars 2020 áttu notendur hátt í 16.000 samskipti við hjúkrunarfræðinga í gegnum netspjallið og lýstu 93% notendanna ánægju með þjónustuna.

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins stefnir nú að því að auka þá þjónustu sem veitt er í gegnum netspjall með því að tryggja landsmönnum aðgang að ráðgjöf og leiðsögn um heilbrigðiskerfið í gegnum netspjall alla daga vikunnar frá kl. átta á morgnana til tíu á kvöldin. Ég hef fallist á tillögu stofnunarinnar þessa efnis og ákveðið að veita 30 milljónir króna á ársgrundvelli til verkefnisins í tvö ár. Netspjall heilsuveru hefur gefið góða raun á tímum COVID-19 og hefur þeim sem nýta sér þessa þjónustu fjölgað jafnt og þétt.

Það er mikilvægt að tryggja að jákvæð reynsla af breyttri þjónustu sem innleidd var vegna COVID-19 glatist ekki, heldur verði nýtt og þróuð áfram til að bæta þjónustu við notendur. Því er ánægjulegt að geta stutt við þetta góða verkefni áfram. Aukinn aðgangur að netspjalli Heilsuveru er enn eitt verkefnið sem styður eflingu heilsugæslunnar og hlutverk hennar sem fyrsta viðkomustað í heilbrigðiskerfinu. Þetta er einnig mikilvægur liður í því að byggja upp öfluga gagnvirka rafræna þjónustu, bæta heilsulæsi og aðgengi fólks að heilbrigðisþjónustu óháð búsetu, líkt og eru meðal markmiða heilbrigðisstefnu til ársins 2030.

Grein heilbrigðisráðherra birtist í Morgunblaðinu 3. júní 2019

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta