Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga haldinn 1. október
21.08.2025Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verður haldinn miðvikudaginn 1. október nk..
Innviðaráðuneytið
Sölvhólsgötu 7
101 Reykjavík
Sími: 545 8200
Netfang: [email protected]
Kt. 580417-0780
Afgreiðsla ráðuneytisins er opin virka daga kl. 8.30–16.00.
Verkefni innviðaráðuneytisins ná til fjölmargra sviða þjóðfélagsins og varða meðal annars samgöngur, sveitarstjórnar- og byggðamál, grunnskrár, húsnæðis- og mannvirkjamál og skipulagsmál. Nýtt og öflugt innviðaráðuneyti tekst á við nýja tíma. Hlutverk þess er að líta eftir, upplýsa og leiða samfélagið til aukinna lífsgæða.
Innviðaráðherra er Sigurður Ingi Jóhannsson. Ráðherra fer með yfirstjórn ráðuneytisins og ber ábyrgð á öllum stjórnarframkvæmdum þess. Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn ráðherra. Verkefni ráðuneytisins eru skilgreind í forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Verkefni innviðaráðuneytisins skiptast á fjórar skrifstofur en auk þess er unnið í teymum þvert á skrifstofur:
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra boðar til opinna íbúafunda í ágúst í öllum landshlutum til að eiga samráð um málaflokka ráðuneytisins. Tilgangurinn er að kalla eftir sjónarmiðum íbúa og sveitarstjórnarfólks um málaflokka ráðuneytisins – samgöngur, sveitarstjórnar- og byggðamál og fjarskipti og stafræna innviði. Fundirnir eru opnir öllum en fólk er hvatt til að skrá sig á vef fundanna.
Þingsályktun um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2024-2038 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2024-2028 var samþykkt á Alþingi þann 5. desember 2023. Með áætluninni er stuðlað að samræmdri stefnumótun ríkis og sveitarfélaga í málefnum sveitarfélaganna. Meginmarkmið áætlunarinnar eru að byggja upp öflug, sjálfbær sveitarfélög um land allt.
Verkefni innviðaráðuneytisins ná til fjölmargra sviða þjóðfélagsins og varða meðal annars samgöngur, sveitarstjórnar- og byggðamál og fjarskipti og stafræna innviði. Innviðaráðherra fer með yfirstjórn ráðuneytisins. Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn ráðherra.
Eyjólfur tók við embætti innviðaráðherra 21. desember 2024. Hann er alþingismaður Norðvesturkjördæmis síðan 2021 (Flokkur fólksins).
Samráðsgátt stjórnvalda er á vefslóðinni island.is/samradsgatt. Þar er að finna áform um lagasetningu, drög að lagafrumvörpum og reglugerðum, skjöl um stefnumótun (t.d. drög að stefnum) og fleira. Hægt er að senda inn umsögn eða ábendingu og jafnframt er mögulegt að gerast áskrifandi að sjálfvirkri vöktun upplýsinga.