Hoppa yfir valmynd

Ferðumst saman - morgunverðarfundur um almenningssamgöngur milli byggða

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið býður til morgunverðarfundar um almenningssamgöngur milli byggða landsins fimmtudaginn 28. febrúar. Á fundinum verður fjallað um nýja stefnumótun um almenningssamgöngur fyrir allt landið.

Fundurinn er opinn öllum og verður haldinn í Iðnó við Tjörnina í Reykjavík. Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 8:00 en dagskrá hefst kl. 8:30 og stendur til kl. 10.

Dagskrá:

  • Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra setur fundinn.
  • Árni Freyr Stefánsson, sérfræðingur í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu.
    „Ferðumst saman – í átt að heildstæðu almenningssamgöngukerfi milli byggða.“
  • Jóna Árný Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Austurbrúar.
    „Mikilvægi almenningssamgangna fyrir landsbyggðina.“
  • Annette Skaarnæs, framkvæmdastjóri markaðsmála hjá EnTur í Noregi
    „Entur – connecting public transport across Norway.“
  • Pallborðsumræður með fyrirlesurum
  • Fundarstjóri er Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri.
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta