Flugstöð og varaflugvellir
Birt á Vísi.is 24. mars 2020
Ríkisstjórnin hefur lagt mikla áherslu á að efla og fjárfesta í innviðum samfélagsins. Nú á að gera enn betur og hefja sérstakt 15 milljarða króna flýtifjárfestingarátak sem kynnt var í Hörpu sl. laugardag. Mikilvægt er að bregðast hratt við en gera jafnframt langtímaáætlanir eins og kostur er í þessari erfiðu stöðu sem samfélagið glímir við. Halda áfram að byggja upp vegi, flugvelli og hafnir svo samfélagið verði í stakk búið þegar Covid-19 faraldurinn verður um garð genginn. Þrátt fyrir hrun í ferðaþjónustunni er brýn þörf fyrir uppbyggingu innviða og eru flugvellir einn af lykilþáttum fjárfestingarátaksins. Notum tímann vel og höldum áfram.
Akureyri og Egilsstaðir
Stækkun við flugstöð á Akureyri, flughlað á Akureyri og akbraut á Egilsstaðaflugvelli eru meðal fjölbreytta verkefna sem ríkisstjórnin leggur áherslu á að verði hafist handa við strax. Áformað er að verja milli 500 til 600 milljónum í ár til undirbúnings. Viðbygging við flugstöð á Akureyri styður við eflingu ferðaþjónustunnar á Norðurlandi þegar allt fer í gang aftur. Stækkun á flughlaði á Akureyrarflugvelli eykur öryggi flugvallarins. Hægt er að bjóða verkið út á vormánuðum og má áætla að um 40 ársverk skapist hjá verktökum á svæðinu. Á Egilsstöðum eykst rekstraröryggi Egilsstaðarflugvallar og flugöryggi á Íslandi almennt. Hægt verður að taka á móti stærri flugvélum sem skapa auka þess atvinnu á svæðinu.
Verkefnin eru arðbær. Þeim er hægt að flýta og þau skapa fjölbreytt störf með skömmum fyrirvara. Samgönguáætlun hefur gefið tóninn að þeim verkefnum sem munu líta dagsins ljós og munu auknir fjármunir verða settir í verkefni um allt land. Þegar fram í sækir mun samkeppnishæfni landsins eiga mikið undir góðum alþjóðlegum flugtengingum en fleiri hlið inn til landsins hafa verið á stefnuskrá ríkisstjórnarinnar.
Í nýrri flugstefnu sem ég mælti fyrir í samgönguáætlun er horft til lengri tíma og er rík áhersla lögð á að alþjóðaflugvellir landsins mæti sem best þörfum flugrekanda fyrir varaflugvelli og fleiri hliðum inn til landsins verði fjölgað sem geta notið góðs af ferðaþjónustu. Hjá ríkisstjórninni er síðan annað átak í undirbúningi sem tekur við á árunum 2021-2023 og mun flýting þessara framkvæmda sem og annarra samgönguframkvæmda birtast þar. Gerum það sem gera þarf og verum skynsöm.