Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

21. ágúst 2024 InnviðaráðuneytiðSvandís Svavars - IRN

Bjart­sýnt og betra sam­fé­lag

Grein birt á Vísi 21. ágúst 2024

Ríkið og sex sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu undirrituðu í dag samkomulag um uppfærðan samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Samkomulagið felur í sér uppbyggingu á samgönguinnviðum og eflingu almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu til ársins 2040. Þetta er stór dagur og mikilvægur. Framtíðarsýn um uppbyggingu samgöngumannvirkja var undirrituð 2019 en nú, fimm árum síðar, höfum við enn betri áætlanir, nákvæmari fjárfestingarplön og raunhæfari tímaramma.

Eflum þjónustu á meðan við bíðum

Við erum þegar byrjuð og á næstu tveimur árum munu íbúar höfuðborgarsvæðisins og landsins alls sjá stór verkefni fara af stað, stórar innviðaframkvæmdir sem koma til með að binda höfuðborgarsvæðið betur saman.

Til að mynda er Fossvogsbrú á leið á framkvæmdastig og mun nýtast almenningssamgöngukerfinu á stóru svæði ásamt því að bylta samgöngum fyrir gangandi og hjólandi. Á meðan við bíðum eftir að þessi stóru verkefni verða tekin í notkun verður þjónusta strætisvagna efld og tíðni aukin.

Þetta eru bæði fjárfestingar í stofnvegum og í fyrsta áfanga borgarlínu. Með því að byggja upp hágæða almenningssamgöngur, líkt og svo mörg okkar þekkja frá heimsóknum til annarra borga, austanhafs og vestan, þá munum við tengja saman kjarna allra sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og búa til skemmtilegra, grænna og betra samfélag fyrir okkur öll.

Þjónusta mun byggjast upp í kringum borgarlínuna og öll hverfi höfuðborgarinnar munu styrkjast. Betri almenningssamgöngur auka jöfnuð - þær eru félagslegt réttlætismál. Með því að byggja upp innviði sem gera öllum kleift að ferðast um höfuðborgarsvæðið hratt og örugglega aukum við nefnilega lífsgæði og tækifæri allra íbúa, óháð efnahag eða stöðu.

Sparnaður fyrir fjölskyldur

Auk þess skiptir máli að með eflingu almenningssamgangna og fjölgun valkosta munu mörg heimili geta sleppt því að reka bíl númer tvö en skv. Félagi íslenskra bifreiðaeigenda er kostnaður við það að reka bíl á síðasta ári um 120-240 þúsund krónur á mánuði. Það er kostnaður sem munar um fyrir fjölskyldur og eflaust margir sem vildu geta ráðstafað þeim í annað.

Framtíðarsýnin er sú að við lok næsta áratugar geti sjö af hverjum tíu íbúum gengið út og hoppað um borð í strætó eða í borgarlínuvagn sem kemur innan tíu mínútna. Það verður ekki lengur þörf á að hlaupa í strætó því ef þú missir af vagninum kemur alltaf annar á næstu tíu mínútum. Leiðakerfið verður öflugra og mun ná betur til allra hverfa borgarinnar.

Undirritunin markar líka stór skref í loftslagsmálum - því ríkið mun koma að því að greiða fyrir orkuskiptum í almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu.

Strætisvagnar eru keyrðir mjög mikið og brenna mikilli olíu, en með hverjum vagni sem skipt er út fyrir hreinorkuvagn drögum við úr losun um 100 tonn. Og við ætlum að skipta þeim öllum út á næstu árum.

Þetta er framtíðarsýnin sem birtist í þessum uppfærða sáttmála. Samgöngusáttmáli markar tímamót fyrir höfuðborgarsvæðið og er til marks um bjartsýnt og betra samfélag á höfuðborgarsvæðinu og fyrir landið allt.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta