Skrifstofa stefnumótunar og fjárlaga
Skrifstofustjóri: Sigurborg Kristín Stefánsdóttir (sett tímabundið)
Skrifstofan ber ábyrgð á gerð og eftirfylgni fjármálaáætlunar og fjárlaga og samþættingu og samræmingu stefna og áætlana. Þá ber skrifstofan ábyrgð á að þróa vinnubrögð og stuðla að árangri og gæðum, faglegri meðferð stjórnsýslukæra, miðlun upplýsinga inn á við og út á við og stuðla að hæfni, vellíðan og þróun starfsmanna. Skrifstofan ber einnig ábyrgð á innri rekstri ráðuneytisins.
Helstu verkefni
- Stefnumótun og áætlanagerð
- Fjármálaáætlun, fjárlagagerð og árangursstjórnun
- Framkvæmd fjárlaga
- Kostnaðarmat frumvarpa
- Stjórnsýsluúrskurðir
- Upplýsingamiðlun
- Innri rekstur ráðuneytisins
- Móttaka viðskiptavina og símsvörun
- Mannauðsmál
- Aðstoð við ráðherra og ráðuneytisstjóra
- Gæðamál
- Þjónustusamningar
- Framkvæmda- og húsnæðismál ráðuneytisins
- Skjalastýring ráðuneytisins
Innviðaráðuneytið
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.