Skrifstofa sveitarfélaga og byggðamála
Skrifstofustjóri: Aðalsteinn Þorsteinsson
Staðgengill skrifstofustjóra: Guðni Geir Einarsson
Meginhlutverk skrifstofunnar eru á sviði stefnumótunar í sveitarstjórnarmálum og byggðamálum. Þá annast skrifstofan eftirlit og umsjón með stjórnsýslu og skipulagi sveitarfélaga og ríki í héraði.
Helstu verkefni
Sveitarstjórnarmál
Skrifstofan sinnir stefnumörkun, þróun löggjafar og regluverks og margvíslegri framkvæmd ýmissa laga sem varða sveitarstjórnarmál, einkum sveitarstjórnarlög og lög um tekjustofna sveitarfélaga. Helstu viðfangsefni skrifstofunnar á þessu sviði eru:
- Verkaskipting ríkis og sveitarfélaga.
- Almennt stjórnsýslueftirlit með starfsemi sveitarfélaga.
- Eftirlit með fjármálum sveitarfélaga og söfnun fjármálaupplýsinga.
- Samskipti ríkis og sveitarfélaga, m.a. samráðsfundir og samstarf á sviði efnahagsmála.
- Samstarf, sameiningar og svæðasamvinna sveitarfélaga.
- Tekjustofnar sveitarfélaga (útsvar, fasteignaskattur, Jöfnunarsjóður sveitarfélaga og þjónustutekjur).
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga
Hlutverk Jöfnunarsjóðs er að jafna mismunandi útgjaldaþörf og skatttekjur sveitarfélaga með framlögum úr sjóðnum á grundvelli ákvæða laga, reglugerða og vinnureglna sem settar eru um starfsemi sjóðsins. Þá greiðir sjóðurinn framlög til samtaka sveitarfélaga, stofnana þeirra og annarra aðila í samræmi við ákvæði laga.
Byggðamál
Skrifstofan annast mál á sviði svæða- og byggðamála, svo sem rannsókna, atvinnuþróunar og atvinnuþróunarfélaga svo og um byggða- og sóknaráætlanir.
Póstmál og Þjóðskrá Íslands
Önnur lykilverkefni skrifstofunnar eru póstmál, málefni Þjóðskrár Íslands.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.