Nýir tollfrjálsir kvótar Evrópusambandsins á íslenskum sjávar- og eldisafurðum taka gildi 1. janúar 2025
27.12.2024Þann 1. janúar 2025 taka gildi átta nýir tollfrjálsir innflutningskvótar til Evrópusambandsins...
Matvælaráðuneytið
Borgartúni 26
105 Reykjavík
Sími: 545 9700
Netfang: [email protected]
Kt. 710812-0120
Afgreiðsla ráðuneytisins er opin virka daga kl. 8.30–16.00. Erindi og fyrirspurnir skal senda á netfangið [email protected]
Matvælaráðuneytið samanstendur af þremur fagskrifstofum og tveimur stoðskrifstofum sem starfa þvert á ráðuneytið.
Fagskrifstofur matvæla, landbúnaðar og sjávarútvegs vinna að faglegum undirbúningi mála og tryggja að þekking starfsmanna sé nýtt og henni viðhaldið. Fagskrifstofurnar bera ábyrgð á lagaramma og regluverki þeirra málaflokka sem eru á þeirra forræði og vinna í samráði við stofnanir ráðuneytisins.
Stoðskrifstofur fjármála og sjálfbærni tryggja að ávallt séu til staðar stjórnunar- og fjárhagslegar upplýsingar til undirbúnings og stuðnings við ákvarðanatöku hjá ráðuneytinu og stofnunum þess.
Markmiðið þessa stjórnskipulags er að treysta stefnumótun og samræma aðgerðir og vinnubrögð við framkvæmd stefnu ráðuneytisins og ráðherra. Jafnframt felur stjórnskipulagið í sér eflingu á innri starfsemi ráðuneytisins með áherslu á markvissa stjórnun.
Verkefni ráðuneytisins eru skilgreind í forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Þann 1. janúar 2025 taka gildi átta nýir tollfrjálsir innflutningskvótar til Evrópusambandsins...
Nýskipaður atvinnuvegaráðherra, Hanna Katrín Friðriksson, tók við lyklum að matvælaráðuneytinu úr...
Í lok maí 2022 skipaði matvælaráðherra fjóra starfshópa til að greina áskoranir og tækifæri í sjávarútvegi og tengdum greinum ásamt því að meta þjóðhagslegan ávinning fiskveiðistjórnunarkerfisins. Starfshóparnir eru Samfélag, Aðgengi, Umgengni og Tækifæri.
Hlutverk matvælaráðuneytis er að búa í haginn fyrir öflugt og framsækið atvinnulíf. Matvælaráðuneytið byggir á grunni þeirra málefna sem voru á ábyrgð sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, auk þess heyra undir það málefni skóga, skógræktar og landgræðslu.
Hanna Katrín tók við embætti atvinnuvegaráðherra 21. desember 2024.Hún hefur setið á Alþingi fyrir Viðreisn síðan 2016.
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.