Alþjóðlegt samstarf
Opinbert samstarf Norðurlanda fer fram á vettvangi Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar. Norðurlandaráð er samstarfsvettvangur þingmanna en Norræna ráðherranefndin samstarfsstofnun ríkisstjórna Norðurlanda. Þrátt fyrir að nafnið gefi annað til kynna fer samstarfið fram í mörgum ráðherranefndum. Ráðuneytið tekur þátt í samstarfi á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar vegna málaflokka ráðuneytisins.
Ein af sjö nefndum norrænu ráðherranefndarinnar (Nordisk Ministerråd) er ráðherranefndin um auðlindamál. Verkefni hennar ná yfir eftirtalin fjögur stefnumótunarsvið: Fiskveiðar og fiskeldi, landbúnað, matvæli og skógrækt.
Meginhlutverk nefndarinnar er að stuðla að sjálfbærri nýtingu náttúru- og erfðaauðlinda, en þær eru undirstaða þess að maðurinn geti lifað á jörðinni.
Nefndin beitir sér fyrir því að skapa traust og tryggja framboð á góðum matvælum, bæta matarræði sem eflir heilsu norræns almennings og þróa þau tækifæri sem leynast í norrænu hráefni og matarmenningu. Mikilvægur þáttur í starfi ráðherranefndarinnar er að styrkja og efla rannsóknir og þróun á sínu sviði.
Fríverslunarsamtök Evrópu (EFTA) Í dag eru aðildarríki Fríverslunarsamtaka Evrópu (European Free Trade Association - EFTA) fjögur: Ísland, Lichtenstein, Noregur og Sviss. EFTA starfar einkum á tveimur sviðum. Annars vegar hafa Ísland, Noregur og Lichtenstein samvinnu við ESB á grundvelli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Hins vegar starfar EFTA að eflingu fríverslunar við ríki utan ESB.
Vegna aðildar Íslands að EFTA tekur ráðuneytið þátt í samstarfi EFTA þjóðanna á þeim sviðum sem falla undir verkefnasvið ráðuneytisins.
Sjá einnig:
EES samstarf
Alþjóðasamningar
Um ráðuneytið
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.