Íslenskur landbúnaður – grunnstoð í íslensku samfélagi - Grein birt í Bændablaðinu 6. febrúar 2025
Kæru bændur,
Ég tók við sem ráðherra atvinnuvega og þar með talið landbúnaðarins undir lok síðasta árs. Það er mér bæði heiður og ánægja að sinna þessum mikilvæga málaflokki og vinna með ykkur að því að tryggja framtíð íslensks landbúnaðar.
Landbúnaður er ekki aðeins grunnstoð samfélagsins heldur líka lykilþáttur í menningu okkar, atvinnuþróun, byggðafestu, sjálfbærni og auðvitað matvælaöryggi. Atvinnugreinin er þannig með traustar rætur í sögunni en teygir líka laufin til framtíðar með nýsköpun og framþróun að leiðarljósi. Ferðaþjónustan hefur verið mikill vaxtarbroddur víða um land og hvatt þannig til endurmats á því hvað það er að vera bóndi.
Mörg ljón í veginum
Nýleg viðhorfskönnun á meðal bænda sem unnin var fyrir matvælaráðuneytið sýnir að einungis 32% bænda eru bjartsýn gagnvart búrekstri sínum og ekki nema 30% bænda telja að núverandi stuðningskerfi þjóni hagsmunum þeirra vel. Þessar niðurstöður gefa skýrt til kynna að við þurfum að bregðast við núverandi ástandi.
Áskoranir sem bændur standa frammi fyrir eru margþættar. Það hamlar nýliðun hvað kynslóðaskipti hafa reynst mörgum fjölskyldum erfið. Raforkukostnaður hefur aukist mikið og háir vextir lenda sérstaklega þungt á ungum bændum og þeim sem hafa nýverið fjárfest í rekstri sínum.
Nú þegar aðfangakeðjur eru undir meira álagi en þær hafa verið í marga áratugi þurfum við einnig að gefa matvælaöryggi landsins gaum. Við sáum í heimsfaraldri mikilvægi öflugra viðskiptasambanda við að tryggja aðgang að mikilvægum lyfjum. Stríðið í Úkraínu hefur truflað útflutning á korni með tilheyrandi verðhækkunum víða um heim.
Nýlegar fréttir af tollastríði Bandaríkjanna gegn lykilviðskiptalöndum þeirra eru váleg tíðindi fyrir þjóðir eins og Ísland sem treysta á gott aðgengi að mörkuðum með útflutning sinn. Það er því miður útlit fyrir að þessar áskoranir séu ekki tímabundnar heldur hluti af nýjum veruleika. Sem viðbragð við breyttri heimsmynd vinnur matvælaráðuneytið ásamt samstarfaðilum að mótun aðgerða um neyðarbirgðahald á matvælum og nauðsynlegum aðföngum.
En það er vísir að viði
Í stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar er kveðið á um nokkur forgangsverkefni á sviði landbúnaðar sem eru að auðvelda nýliðun og kynslóðaskipti og breyta jarðalögum til að vinna gegn samþjöppun og stuðla að nýtingu á ræktarlandi til búrekstrar. Auk þessa munum við sérstaklega huga að stöðu ungra bænda. Það þarf að vera raunhæft og eftirsóknarvert fyrir ungt fólk að koma undir sig fótunum í búskap.
Ræðum málin
Ráðuneytið og Bændasamtökin skipuleggja nú í sameiningu hringferð um landið þar sem við ætlum að eiga milliliðalaust samtal við bændur. Við viljum heyra beint frá þeim hvernig þeir meta ástand greinarinnar, hvaða breytingar þeir telja nauðsynlegar, hvernig hægt sé að auka nýliðun og hvernig stuðningskerfið geti betur gagnast bændum.
Til að tryggja landsmönnum hollan og góðan mat þurfum við öfluga innlenda framleiðslu sem rekin er með sjálfbærni að leiðarljósi. Ég hlakka til að vinna með ykkur að því að efla íslenskan landbúnað um land allt á komandi árum. Með opnu samtali, öflugu samstarfi og sameiginlegri stefnu getum við byggt upp sterka framtíð fyrir íslenskan landbúnað.