Ávarp við opnun Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins
I.
Um síðustu áramót urðu þáttaskil á íslenskum fjármagnsmarkaði. Gömlu ríkisviðskiptabönkunum Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands var breytt í hlutafélög og fjórir fjárfestingarlánasjóðir sameinuðu starfsemi sína í Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf. og Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins. Hér í dag fögnum við þeim áfanga að Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins hefur starfsemi sína með formlegum hætti.
Þessum breytingum á íslenskum fjármagnsmarkaði voru strax í upphafi sett skýr markmið:
- Í fyrsta lagi að draga úr umsvifum ríkisins í almennri fjármálastarfsemi og leggja af ríkisábyrgðir.
- Í öðru lagi að brjóta niður þá múra sem verið hafa á fjármagnsmarkaðinum á milli einstakra atvinnugreina.
- Í þriðja lagi að greina á milli og skýra ábyrgð þróunar- og áhættufjármögnunar annars vegar og almennrar fjármálastarfsemi hins vegar.
- Í fjórða lagi að efla framboð áhættufjármagns fyrir atvinnulífið og
- í fimmta lagi að ná fram hagræðingu á fjármagnsmarkaðinum með aukinni samkeppni, sem á að skila sér í ódýrari og betri fjármálaþjónustu fyrir atvinnulífið.
II.
Auk starfrækslu tryggingardeildar útflutningslána verður starfssvið Nýsköpunarsjóðsins í meginatriðum tvíþætt:
- Annars vegar þátttaka í arðvænlegum fjárfestingarverkefnum með íslenskum og erlendum fyrirtækjum.
- Hins vegar stuðningur við forathuganir, vöruþróunar- og kynningarverkefni.
Af þessu leiðir að þátttaka Nýsköpunarsjóðs í fjárfestingarverkefnum er ekki hefðbundin stofnlánastarfsemi. Sjóðurinn beinir sjónum sínum fyrst og fremst að áhættumeiri fjárfestingarverkefnum á fyrstu stigum vaxtar, þ.e. á þeim stigum þar sem hefðbundin áhættufjármagnssjóður starfa ekki. Honum er því ekki ætlað að keppa við aðra fjárfesta, sem nú þegar hafa á farsælan hátt markað sér veigamikið hlutverk á síðari stigum áhættufjárfestinga, eins og t.d. Aflvaki, Þróunarfélagið, Burðarás og Eignarhaldsfélag Alþýðubankans hafa svo ágætlega gert. Sjóðurinn mun jafnframt styðja við vöruþóun og ýmis konar forathuganir og hagkvæmiathuganir, þar sem minni kröfur eru gerðar til beins arðs eða endurgreiðslu fjárframlaga, enda þótt ætla megi að þau geti leitt til arðsamra fjárfestinga eða framleiðslu síðar meir.
Nýsköpunarsjóðurinn mun sinna vandaðri áhættufjárfestingu á grundvelli þeirra meginreglna sem beitt hefur verið með góðum árangri á þróaðri mörkuðum en okkar. Nýsköpunarsjóðurinn er sem sagt sjóður sem fjárfestir á faglegum grunni þar sem arðsemisvon er í takt við áhættu.
Í umfjöllun Alþingis um frumvarp um Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins og í þeim starfsreglum sem nú hafa verið staðfestir kemur skýrt fram að Nýsköpunarsjóði er ætlað sérstakt hlutverk á íslenskum fjármálamarkaði á frumstigum fjárfestingar í íslenskum fyrirtækjum. Það er síðan á ábyrgð stjórnenda sjóðsins hvernig tekst til.
III.
Sú breyting sem nú hefur orðið á rekstrarformi ríkisviðskiptabankanna og fjárfestingalánasjóðanna er mér vissulega kærkomin. Jafnframt er mér í mun að áfram verði haldið við að ryðja burtu þeim múrum sem enn eru á milli atvinnugreinanna. Hætta verður að meta alla hluti út frá einangruðum sérhagsmunum einstakra atvinnugreina. Í stað þess þurfum við öll að opna augu okkar fyrir því að það er miklu meira sem sameinar atvinnugreinarnar en skilur þær að. Þetta hefur tekist vel í þeim tilvikum þar sem reynt hefur á þetta. Átak til atvinnusköpunar og Samstarfsvettvangur sjávarútvegs og iðnaðar eru góð dæmi um hvernig til hefur tekist. Átak til atvinnusköpunar er samstarfsverkefni iðnaðar- og viðskiptaráðuneytisins, Iðnlánasjóðs og Iðnþróunarsjóðs, sem starfrækt hefur verið síðastliðin tvö ár. Þótt aðstandendur þess samstarfs hafi átt rætur í hefðbundnum iðnaði studdi það fyrst og fremst lítil og meðalstór fyrirtæki og nutu mörg fyrirtæki úr öðrum greinum, t.d. úr sjávarútvegi, ferðaþjónustu og landbúnaði, góðs af því. Nú eru gömlu samstarfsaðilarnir, þ.e. sjóðir iðnaðarins, horfnir af sjónarsviðinu. Brýnt er að halda þessu starfi áfram. Nýsköpunarsjóður mun taka upp merki þeirra og halda áfram því uppbyggingarstafi sem þeir unnu að og áttu vissulega sinn hlut í að koma á fót. Hér er ég fyrst og fremst að hugsa um mikilvæga verkefnaflokka eins og Vöruþróun, Frumkvæði-framkvæmd, Snjallræði, og Samstarfsvettvang sjávarútvegs og iðnaðar. Allt eru þetta verkefni sem unnið hafa sér traust og virðingu þeirra sem til þekkja.
IV.
Ágætu samkomugestir,Ekki þarf að fara mörgum orðum um nauðsyn þess að Nýsköpunarsjóður myndi sterk tengsl við rannsóknar- og þróunarumhverfið hér á landi. Hins vegar er ekki síður mikilvægt að gott samstarf myndist við atvinnulífið og samtök þeirra. Það kemur bæði til af því að uppspretta nýsköpunar er gjarnan að finna í frjóum nýsköpunarjarðvegi stærri fyrirtækja og nauðsyn þess að fá fagfjárfesta til samstarfs um fjárfestingu á frumstigi með öflugri þáttöku í framtakssjóði Nýsköpunarsjóðs.
Það er trú mín og vissa að tilkoma Nýsköpunarsjóðs muni leiða til efldrar nýsköpunar og aukinnar sóknar og uppbyggingar íslensks atvinnulífs, m.a. með erlendri samvinnu. Það mun hvíla á herðum stjórnar og starfsliðs sjóðsins að búa svo um hnútana að það takist. Ég vil nota tækifærið að þakka stjórn og framkvæmdastjóra gott samstarf við mótun reglugerðar um sjóðinn og reglna um einstaka þætti í starfsemi hans.
Ég lít svo á að Nýsköpunarsjóður sé fyrsta skrefið í átt að breyttu nýsköpunarumhverfi hér á landi. Óhætt er að segja að stofnun sjóðsins sé mjög mikilvægt skref að því marki. Næsta skref er hins vegar að endurskipuleggja tækni- og rannsóknarstofnanir atvinnulífsins. Það er verkefni næstu ára.
Megi gæfa og gott gengi fylgja Nýsköpunarsjóði í þeim vandasömum störfum sem framundan eru.
Takk fyrir.