Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

31. janúar 2008 UtanríkisráðuneytiðUTN Forsíðuræður

Ísland á innri markaði Evrópu






Virðulegi forseti

I.

Nú eru fjórtán ár og þrjátíu dagar frá því að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið gekk í gildi og Ísland með menningarstofnanir sínar, atvinnufyrirtæki, banka, sveitarfélög, vísindarannsóknir, stjórnsýslu og löggjafarstarf sameinaðist innri markaði Evrópu.

Engin ein ákvörðun í síðari tíma sögu Alþingis hefur haft jafn rík og djúptæk áhrif á íslenskt samfélag og enginn andmælir því , virðulegi forseti, að EES-aðild var algjörlega rétt ákvörðun Íslendinga.

Hún þýddi opnun landsins, nýtt frelsi fólks til að flytjast milli landa, stofna fyrirtæki, færa fjármagn og eiga viðskipti með vörur og þjónustu. Hún gaf af sér stóreflda íslenska háskóla, kynnti til sögu hér á landi fyrstu réttarbætur á mörgum sviðum, til dæmis í umhverfismálum og neytendamálum – og hún er hin raunverulega forsenda þess að íslensk fyrirtæki gátu leyst gamlar og lúnar landfestar og sótt á heimsmarkað, jafnokar hvers sem er.

Við Íslendingar höfum margt að læra af fjórtán ára reynslu okkar á innri markaði Evrópu. Hugsum til þess núna hversu margir töldu 1993 að EES-aðild stefndi  þjóðerni og sjálfstæði í bráða hættu og drögum þann lærdóm sem augljós er af sögu síðasta eins og hálfa áratugar; þann lærdóm að það styrkir Ísland verulega  að taka þátt í innri markaði Evrópu.  

Ég hef sagt það hreinskilnislega að vera mín í utanríkismálanefnd Alþingis í aðdraganda EES-samningsins og hin gríðarlega harða umræða sem þá fór fram í þinginu og samfélaginu sé besti skóli sem ég hafi gengið í gegnum. Ég kom að málinu andstæð EES-samningnum en sannfærðist eftir að hafa kynnt mér málin í þaula, að samningurinn væri mikilvægt gæfuspor fyrir íslenskt samfélag. Íslensk stjórnmálaumræða verður aldrei söm vegna þess að við bárum gæfu til að taka stökkið inn í EES. Áratugum saman hafði það verið viðurkennt stefnumið sem náði að skera á flokkslínur að Ísland ætti beinlínis að halda sér frá ábyrgð á alþjóðavettvangi vegna meintrar sérstöðu. Sá skilningur var útbreiddur að með einangrun væri sjálfstæðið tryggt. Bjartur í Sumarhúsum var aldrei bara skáldsagnapersóna.

Þessi tími er liðinn í íslenskum stjórnmálum og kemur aldrei aftur, þótt einstaka menn með fortíðarþrá kunni enn að streitast á móti.

Þátttakan á innri markaði Evrópu hefur styrkt Ísland á ótal sviðum og það er rétt og eðlilegt að nálgast verkefni okkar á Evrópuvettvangi sem eitt mikilvægasta hagsmunamál Íslands þar sem ríði á að sýna árvekni og meta allar stöður rétt.

Samrunarferlið í Evrópu hefur bráðum staðið í sextíu ár, við Íslendingar tókum stökk inn í það fyrir fjórtán árum. Mikilvægustu þættir þess hafa jafnmikil og nákvæmlega sömu áhrif á starfsskilyrði fyrirtækja hér á Íslandi eins og þeir hafa á fyrirtæki í Slóveníu, á Írlandi, í Svíþjóð og Portúgal. Hvort sem Ísland er innan eða utan Evrópusambandsins erum við á innri markaðnum með sínum samræmdu reglum.

Margir hafa orðið til þess að harma á liðnum árum áhrifaleysi Alþingis sem einhvers konar stimpilstofnunar EES-gerða. Í því felst vanmat á möguleikum  íslenskrar stjórnsýslu og alþingismanna til að hafa áhrif og til að nýta sér val sem löggjöf Evrópusambandsins oftar en ekki gefur aðildarríkjum innri markaðarins við útfærslu EES-efnisreglna í innlendri lagasetningu.

Hins vegar er einnig nauðsynleg forsenda skynsamlegrar umræðu að allir geri sér fullkomlega ljóst að með því að kjósa EES-aðild kýs Alþingi að halda Evrópusamstarfi á stjórnsýslustigi en kýs ekki þátttöku í pólitísku samstarfi Evrópuþjóða. Kjarni munarins á EES og Evrópusambandinu er þessi að EES samstarf er í eðli sínu stjórnsýsluferli, stjórnsýsluferli sem þó bindur Alþingi Íslendinga til lagsetningar á mörgum sviðum þjóðlífsins.

Á samráðsfundi sem utanríkisráðuneytið hélt fyrir nokkrum árum með fulltrúum íslensks atvinnulífs var það meginniðurstaðan að Íslendingar ættu að haga rekstri hagsmunamála sinna eins og við værum aðilar að ESB. Í niðurstöðum Evrópunefndar frá mars 2007 er bent á fjölmargar leiðir til að styrkja starf Íslendinga gagnvart Evrópusambandinu og innan EES með það fyrir augum að hagsmuna íslensks almennings og íslenskra fyrirtækja verði betur gætt.

Alþingi gegnir þar mikilvægu hlutverki, virðulegi forseti.

Í dag á ég sem utanríkisráðherra frumkvæði að þeirri nýbreytni að háttvirtir þingmenn ræði sérstaklega á almennum þingfundi helstu málefni innri markaðar Evrópu og aðra þætti Evrópusamstarfs sem Ísland tekur þátt í.

Til grundvallar er lögð skýrsla sem viðskiptasvið utanríkisráðuneytisins og sendiráð Íslands í Brussel hafa gert, þar sem lýst er stöðu og efnisinnihaldi stefnu og löggjafar sem nú eru til meðferðar innan ESB og EES en munu á næstu misserum koma til afgreiðslu háttvirtra þingmanna hér á Alþingi.

Regluverk innri markaðarins hefur víðtæk áhrif hér á landi. Ísland hefur ekki sömu tækifæri til áhrif á þær reglur og aðildarríki ESB en formleg aðkoma íslenskra stjórnvalda að EES málum takmarkast við fyrstu stig tillagna frá framkvæmdastjórn ESB. Reynsla hefur sýnt að unnt er að hafa áhrif á þróun mála innan sambandsins á þessu stigi þegar rétt er á málum haldið nógu snemma. Prýðilegt dæmi um þetta er stefnumótun ESB um málefni hafsins sem Ísland tók virkan þátt í og hafði umtalsverð áhrif á. 

Nú liggur fyrir að til að rétta af lýðræðishallann innan ESB og auka áhrif þjóðkjörinna fulltrúa verður hlutverk Evrópuþingsins aukið. Þetta takmarkar möguleika EES ríkja til þeirrar aðkomu og áhrifa sem ég var að lýsa. Alþingi ætti því að efla til muna samstarf við Evrópuþingið og láta það ná til fleiri þingnefnda en utanríkismálanefndar og EES þingmannanefndarinnar. Fagnefndir Alþingis eiga ríkt erindi við þingnefndir í Evrópuþinginu meðan þær sinna mótun löggjafar innri markaðarins og þar með efni væntanlegra íslenskra laga. 

Fram til þessa hefur Alþingi komið of seint að umræðunni um hver afstaða Íslands innan EES kerfisins eigi að vera, hvernig forgangsraða eigi hagsmunamála hjá sendiráðinu í Brussel og meðhöndlun ráðuneyta á ESB-tilskipunum sem gefa aðildarríkjum svigrúm til að velja útfærslu í landsrétti. Umræðan í dag og skýrslan til Alþingis er liður í því að rétta þessa skekkju í löggjafarstarfi. Alþingi hefur ekki fylgt eftir eigin reglum um þinglega meðferð EES gerða frá 1994. Þarna þarf úrbætur, auk þess sem hlutverk utanríkismálanefndar ber að efla um leið og skoða ber stofnun sérstakrar Evrópunefndar hér í þinginu.

  

 

II.

Mun ég nú víkja að nokkrum helstu málefnum sem reifuð eru í skýrslunni og eru áherslumál Íslands á Evrópuvettvangi. 

Á leiðtogafundi Evrópusambandsins í Lissabon 17. desember síðastliðinn var heildstæð stefna Evrópusambandsins í málefnum hafsins staðfest. Nær hún til umhverfismála, nýtingu auðlinda, siglingamála, ferðamála við ströndina, hafnamála, byggðamála strandbyggða, varnir gegn vá og ólögmætum aðgerðum á hafi, vöktun siglinga og lífríkis, rannsókna og þróunar og uppbyggingar upplýsingakerfa. 

Má af þessu sjá að stefnan er víðtækari en áður hefur þekkst og gengur þvert á hefðbundna verkaskiptingu ráðuneyta í flestum löndum.

Íslendingar ákváðu snemma að beita sér eins mikið í stefnumótunarferlinu og ESB gaf kost á, en staðreyndin er sú að slík ferli eru oftast nær opin Íslandi til jafns við aðilddarríki en Ísland hefur sjaldnast nýtt það. 

Sendiráð okkar í Brussel fylgdist grannt með frá upphafi þegar ESB gaf út grænbók 2005 og sendi hana til umsagnar fjörutíu hagsmunaaðila hér á landi, allra verkalýðsfélaga sem tengjast störfum á hafinu, útvegsmanna, ransóknastofnana, náttúruverndarsamtaka, menningarstofnana o.s.frv. 

Utanríkisráðuneytið setti upp vinnuhóp með aðild allra fagráðuneyta sem málefnið snerti og Sambands sveitarfélaga. Er skemmst frá því að segja að ýmsar áherslur Íslendinga í athugasemdum skiluðu sér inn í stefnuna sem staðfest var í desember, eins og nánar er lýst í skýrslunni. Ísland hefur sótt ráðherraráðstefnu um málið og forseti framkvæmdastjórnar ESB José Manuel Barroso þakkaði þar sérstaklega framlag Íslands en talsmenn ESB hafa ítrekað lýst yfir að vegna sérfræðiþekkingar Íslendinga á málefnum hafsins sé framlag okkar til málaflokksins mikils metið. Í heimsókn minni til framkvæmdastjórnar ESB í Brussel í haust var einnig óskað eftir því að íslenskur sérfræðingur á sviði sjávarútvegs kæmi þangað til starfa. 

Evrópusambandið hefur sett sér tölusett markmið um minnkun gróðurhúsalofttegunda og hafði lykiláhrif á samningafundi Sameinuðu þjóðanna um viðbrögð við loftslagsvánni á Balí í desember. Evrópusambandið er forystuafl í umhverfismálum í heiminum nú um stundir. 

Í loks ársins má ætla að ný löggjöf sem miðar að því skylda sveitarfélög, fyrirtæki og almenning til að endurvinna úrgang verði afgreidd. Viðskiptakerfi með gróðurhúsalofttegundur er í mótun á grundvelli tilskipunar frá 2003 sem hefur verið tekin inn í EES-samninginn eins og rætt var um hér á Alþingi síðastliðið haust. Í nóvember varð ljóst að gildissvið þess regluverks myndi ná til flugstarfsemi. Leggur Ísland nú áherslu á að færa rök fyrir sérstæðri nauðsyn samgangna í lofti fyrir íslenskt samfélag svo reglurnar verði ekki of íþyngjandi fyrir íslenska flugstarfsemi, eins og nánar er rakið í skýrslunni. Rétt er að geta þess að vænta má þess að viðskiptakerfið nái til siglinga innan fárra ár sem og áliðnaðar. 

Fyrsta heildstæða orkustefna ESB var afgreidd á leiðtogafundi í mars á síðasta ári. Þá voru í september kynntar tillögur um afnám hafta í orkusölu sem ná munu til Íslands og fela í sér samræmdar reglur um innri markað með raforku. Framkvæmdastjórnin telur ljóst að núverandi reglur um aðskilið eignarhald á orkumarkaði hafi ekki skilað árangri og samþjöppun væri mikil. Komst Eftirlitsstofnun EFTA að sams konar niðurstöðu um EES-ríkin, en tiltók þó að of snemmt væri að dæmi um áhrifin á Íslandi. 

Tilskipun sem felur í sér að póstþjónusta verði gefin frjáls hefur verið umdeild innan ESB en verður líklega samþykkt á næstu mánuðum með gildistöku 2010. Innleiðing hér á Íslandi myndi þýða að Íslandspóstur hf. missi einkarétt til póstþjónustu. 

Breytingar hafa orðið á samningum um niðurfellingu tolla á landbúnaðarafurðir, þannig að Ísland fær stærri kvóta fyrir lambakjöt til ESB og nýjan kvóta fyrir smjör, skyr og pylsur en ESB á móti kvóta fyrir nautgripi, svínakjöt, kjúklinga, rjúpur, pylsur, sérupprunarmerktar afurðir, osta og kartöflur. 

Íslendingum býðst að gerast aðilar að tímamótasamningi ESB við Bandaríkin um loftferðir þar sem opnað er fyrir jafnt aðgengi allra flugfélaga að áætlunarflugi til Bandaríkjanna. 

Ný kynslóð samstarfsáætlana um vísindi, menningu og félagsmál hóf göngu sína á síðasta ári en Ísland hefur frá upphafi fengið miklu meira fé inn í verkefni hér á landi en við höfum lagt inn. Sjö þúsund manns komu að slíkum ESB-verkefnum á Íslandi árið 2006, 4.700 nemendur í grunnskólum og framhaldsskólum og ríflega þúsund erlendir nemendur komu gagngert til námsdvalar á Íslandi. Tvö hundruð verkefni voru unnin undir íslenskri stjórn. 

Innleiðing reglugerðar ESB um matvælamál mun kalla á víðtækar lagabreytingar hér á landi. 

Líkur eru á að eftir margra ára deilur um þjónustutilskipun ESB verði bætt við regluverk ESB sérstakri tilskipun um almannaþjónustu. Þjónustutilskipunin sjálf er til meðferðar á vettvangi EFTA þar sem EES/EFTA ríkin ráðgast um hvernig tilskipunin verði tekin upp í samninginn. Vinnuhópur ráðuneyta hefur verið settur upp hér á landi vegna þessa og var tilskipunin send 20 hagsmunaaðilum og óskað athugasemda vegna væntanlegrar innleiðingar. Er unnið úr þeim athugasemdum sem bárust. Ísland mun fylgjast af sérstökum áhuga með umræðum um skilgreiningar almannaþjónustu í ESB löggjöf sem nú eru hafnar. 

Rekstur EES-samningins hefur gengið vel en til þess þarf góðan samstarfsvilja allra aðila. Aðstæður verða hins vegar erfiðari eftir því sem Evrópusambandið tekur skipulagsbreytingum, hlutverk Evrópuþingsins eykst og framkvæmdastjórnin breytist án þess að hægt sá að breyta stofnanakerfi EES/EFTA stoðarinnar jafnhliða. Við megum ekki loka augunum fyrir þessu heldur verðum við að bregðast við jafnharðan eftir því sem hægt er. 

 

 

III.

Virðulegi forseti.

Ég hef áður úr þessum ræðustól bent á að skilin milli alþjóðamála og innlandsmála séu að hverfa í stjórnmálum. 

Aðild Íslands að innri markaði Evrópu felur í sér að skilin eru horfin á sviðum fjármagnsflutninga, vöru- og þjónustuviðskipta, fólksflutninga, félaga- og hugverkaréttar, samkeppnismála, matvælamála, samgangna, orku- og umhverfismála, neytendamála, vísinda, rannsókna, menntunar og menningar svo nokkuð sé nefnt. Á þessum sviðum deilum við valdi til stefnumótunar og reglusetningar með öðrum aðildarríkjum evrópska efnahagssvæðisins. Og lokum ekki augunum fyrir því að þetta er bróðurparturinn af starfsemi Evrópusambandsins. EES-samningurinn er hins vegar alþjóðasamstarf á stjórnsýslustigi og að upplagi þiggjandi gagnvart ESB á þessum sviðum. Í Schengen samstarfinu tekur Ísland hins vegar fullan þátt einnig í pólitíska þættinum. 

Í stjórnarsáttmálanum er áhersla lögð á að staða Íslands í Evrópusamstarfinu sé á dagskrá með virkum hætti og að umræða sé mikilvæg fyrir hagsmuni landsins. Stjórnarsáttmálinn mælir fyrir um að komið verði á fót sérstakri nefnd, eins konar vaktstöð, til þess að fylgjast með þróun mála í Evrópu og leggja mat á breytingar út frá hagsmunum Íslendinga. Nefndin mun taka til starfa á næstu dögum og munu tveir alþingismenn stýra starfi nefndarinnar með sameiginlegri formennsku, þeir Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar og Illugi Gunnarsson varaformaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Þess er óskað að allir stjórnmálaflokkar skipi fulltrúa í nefndina auk samtaka atvinnurekenda og launþega. 

Þá hef ég sett á fót eina nefnd og er í þann veginn að skipa aðra með embættismönnum og hagsmunaaðilum til að fjalla um landbúnaðarstefnu og sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins. Ég tel mikilvægt að við fylgjumst ávallt grannt með þróun stefnumiða sambandsins á þessum sviðum til þess að vera sem best búin undir breytingar sem hér kunna að verða. 

Það fer ekki framhjá nokkrum manni að mörgum í íslensku atvinnulífi þykir íslenska krónan sníða sér of þröngan stakk. Ég hef haldið því fram lengi að krónan stefndi í að vera viðskiptahindrun og að smæð gjaldmiðilsins kostaði almenning á Íslandi meira en hægt væri að una við. Aðstæður knýja á um að allir stjórnmálaflokkar og forysta atvinnulífs og launþegahreyfingar hreinsi borðið, leiti fyrst sameiginlegs skilnings á aðstæðum og svo nýrra lausna sem styrki Ísland til framtíðar. 

Ég er sammála bæði forsætisráðherra og formanni bankastjórnar Seðlabankans um að einhliða upptaka Evru að hætti Svartfellinga sé útilokuð fyrir Ísland. Mín skoðun er að Evra verði ekki tekin upp án aðildar að myntbandalaginu í heild.

Ríkisstjórnin er reiðubúin í samræðuna. Ég hvet samtök atvinnurekenda, samtök launafólks og aðra þá sem vilja leggja gott til, að taka upp ný vinnubrögð og benda á ábyrgar og færar leiðir til lausna. Sérstaklega þurfum við að vara okkur á því að fara ekki að næra gömlu hugmyndina um að sérstaða okkar losi okkur undan skyldum sem aðrar þjóðir þurfa að taka á sig. Lýðræðisleg samræða um leiðir Íslands til framtíðar er verkefni okkar allra og ekki einkamál stjórnmálamanna eða –flokka, því ljóst er að ákvörðun um nýja stöðu Íslands í Evrópusamstarfi verður tekin í þjóðaratkvæðagreiðslu. Án samþykkis kjósenda fer enginn lönd né strönd. 

Almenningur á rétt á málefnalegum umræðum, greiðum og réttum upplýsingum og heiðarlegu mati á hagsmunum lands og þjóðar. Fyrir fjórtán árum og þrjátíu dögum tóku Íslendingar stökkið inn á sameiginlegan innri markaðar Evrópu. Þau sem þá óttuðust mest ásælni útlendinga, t.d. að hingað myndu flykkjast þúsundir frá fátæku ríkjunum Írlandi og Finnlandi eða að útlendingar myndu kaupa upp allar jarðir á Íslandi höfðu, þegar á reyndi, ekkert að óttast. 

Og sagan kennir meira að segja að Ísland, Írland og Finnland hafa öll blómstrað á innri markaði Evrópu, án ásælni og með gagnkvæmum ávinningi. 

Virðulegi forseti,

Innri markaður Evrópu og samræmdar reglur hans eru hversdagslegur íslenskur veruleiki fólks og fyrirtækja. Stofnanauppbygging hans, ný stefnumótun og löggjöf hefur ýmsa galla og marga kosti eins og allur annar íslenskur veruleiki. Það var löngu tímabært að ýmsar hliðar framkvæmdarinnar yrðu ræddar sérstaklega á þingfundi eins og við nú gerum. 

Verkefni okkar, ríkisstjórnarinnar, háttvirtra alþingismanna og Íslendinga allra, er að halda áfram vegferðinni í Evrópusamrunanum styrkum og markvissum skrefum en heltast hvorki úr lestinni né hlaupa hraðar en við getum. 



Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta