Utanríkisráðherra skrifar grein í ungverskt dagblað
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra skrifaði grein í ungverska dagblaðið Magyar Hírlap á meðan á opinberri heimsókn hans til Ungverjalands stóð.
Í greininni sem birtist í dag fjallar ráðherrann um samskipti Íslands og Evrópu en aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið munu hefjast þegar Ungverjar fara með formennsku í sambandinu á fyrri hluta næsta árs.
Sjá grein utanríkisráðherra á ensku eða á vef dagblaðsins (á ungversku).