Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

8. september 2012 UtanríkisráðuneytiðÖssur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra 2009-2013

Ben Stiller og Þórey

Össur Skarphéðinsson skrifar

Fjári var það gott hjá Þóreyju Vilhjálmsdóttur, framkvæmdastjóra borgarstjórnarflokks Sjálfstæðismanna, að benda á hér í Fbl. að lögin um endurgreiðslu 20% kostnaðar við kvikmyndir framleiddar hér á landi hafa reynst einstaklega farsæl. Þau hafa meðal annars, eins og Þórey bendir á, laðað hingað frægar kvikmyndastjörnur eins og Ben Stiller, og ekki má nú gleyma harðjöxlum eins og Clint Eastwood, sem við Geir H. Haarde vorum samtíða í líkamsrækt í World Class um árið þegar hann gerði Flags of Our Fathers.

Það er líka aldeilis rétt hjá henni, að þessi lög skapa vinnu fyrir um 800 manns við kvikmyndagerð á Íslandi, og hafa kallað heim aftur úrvalsfólk, sem hafði sytrað til útlanda í erfiðu árferði. Þá eru ótaldar þær þúsundir starfa sem skilgreina má sem afleidd störf vegna kvikmyndaframleiðslunnar hér á landi. Á það bendir Þórey réttilega líka.

Framkvæmdastjóri borgarstjórnarflokks Sjálfstæðismanna gleymir hins vegar einu í annars afbragðsgóðri grein. Þessi merku lög voru upphaflega barin í gegn af Finni Ingólfssyni, iðnaðarráðherra Framsóknarflokksins, við töluverða erfiðleika gagnvart Sjálfstæðisflokknum, sem Þórey vinnur fyrir. Finnur lagði til, og fékk samþykkta, 14% endurgreiðslu. Sjálfsagt er að láta hann njóta þess frumkvæðis. Þegar fram liðu stundir hækkuðu önnur lönd sína endurgreiðslu. Við það dapraðist mjög segulmagn og samkeppnishæfni Íslands á þessu sviði.

Þegar ég varð iðnaðarráðherra 2007 átti ég fundi með kvikmyndagerðarfólki sem færði afar sterk rök fyrir nauðsyn þess að hækka endurgreiðsluna upp í 20%. Ég fór með málið af stað en þótt ég ólmaðist eins og kviðsítt naut í mýri mætti ég hörðum vegg hjá Sjálfstæðisflokknum sem var líka í þáverandi ríkisstjórn. Flokkurinn, sem Þórey vinnur fyrir, var einfaldlega á móti því að hækka endurgreiðsluna upp í 20%.

Það kvað við annan tón þegar Vinstri hreyfingin – grænt framboð tók sæti í ríkisstjórn. Á öðrum fundi þeirrar ríkisstjórnar tók ég upp úr skúffu frumvarpið sem Sjálfstæðisflokkurinn vildi aldrei sjá í ríkisstjórn – og það rann í gegn. Alþingi samþykkti 20% endurgreiðsluna í kjölfarið. Síðan rann upp það blómaskeið í kvikmyndagerð á Íslandi sem framkvæmdastjóri borgarstjórnarflokks Sjálfstæðismanna lýsti svo fallega í grein sinni hér í Fbl. á dögunum.

Það var því þrátt fyrir Sjálfstæðisflokkinn, en ekki vegna hans, sem Ben Stiller, Tom Cruise og annað stjörnuglit kom hingað til að gera stórmyndir sínar í sumar.

Grein utanríkisráðherra í Vísi 8. september 2012 (pdf).

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta